BREYTA

Aðalfundi Friðarhúss lokið

427175377EUHtYW phAðalfundur Friðarhúss SHA ehf. var haldinn í dag, laugardag. 210 einstaklingar eiga nú hlut í Friðarhúsi, en heildarhlutafé er 5.840.000 kr. Er það dálaglegt ef haft er í huga að félagið var stofnað þrítugasta mars fyrir þremur árum, en hlutafjársöfnun hófst ekki af krafti fyrr en fyrir tveimur árum. Góður andi var á fundinum og fékk stjórn félagsins lof fyrir eljusemi sína. Litlar breytingar urðu á stjórninni, en Freyr Rögnvaldsson vék úr stjórn fyrir Vésteini Valgarðssyni. Nýju stjórnina skipa því: Árni Hjartarson, Elvar Ástráðsson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Sigríður Gunnarsdóttir, Sigurður Flosason, Sverrir Jakobsson, Þórður Sveinsson (fulltrúi miðnefndar SHA) og Vésteinn Valgarðsson.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …