BREYTA

Alþingi ítrekar fordæmingu sína á fangabúðunum í Guantanamo

Við höfum sagt frá tillögu sem lögð var fram á Alþingi 17. janúar um að fordæma fangabúðirnar í Guantanomo (sjá hér). Tillögunni var samkvæmt hefð vísað til utanríkismálanefndar og annarrar umræðu en í fyrri umræðu kom fram stuðningur við tillöguna frá þingmönnum allra flokka. Í dag, 6. febrúar, var af gefnu tilefni aftur vikið að þessu máli og enn kom fram stuðningur allra flokka. Umræðuna má sjá á vef Alþingis. Ekki er sama samstaða um frumvarp til varnarmálalaga sem rætt verður á fundi SHA fimmtudagskvöldið 7. febrúar kl. 20, sjá hér að neðan.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …