BREYTA

Ályktun frá félagsfundi SHA

Almennur félagsfundur Samtaka herstöðvaandstæðinga, haldinn fimmtudaginn 20. október, hvetur til þess að slitið verði á öll tengsl milli alþjóðaflugvallar Íslendinga í Keflavík og veru erlends setuliðs á Miðnesheiði. Íslendingar hafa fulla burði til þess að reka flugvöll án styrkja frá erlendu herveldi. Fundurinn bendir á að einfaldasta og besta lausnin á þessu milliríkjadeilumáli íslenskra og bandarískra stjórnvalda er að Íslendingar segi upp hinum svokallaða varnarsamningi frá 1951 og erlent herlið hverfi héðan úr landi innan 18 mánaða. SHA

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …