BREYTA

Ályktun vegna ECA-umræðu

Samtök hernaðarandstæðinga lýsa vonbrigðum sínum með að enn á ný sé hafin umræða um að einkareknum flugher verði leyft að koma sér fyrir á Keflavíkurflugvelli. SHA hafa undanfarið ár ítrekað bent á siðleysi þessara áforma og minnt á ákvæði stjórnarsáttmálans um að Ísland skuli tala máli afvopnunar í heiminum. Einkarekinn málaliðaher getur aldrei samræmst þeirri hugsjón. Jafnftamt harma samtökin komu bandarískrar orrustuflugsveitar sem hér verður næstu vikurnar undir fána "loftrýmseftirlits". Það fráleitt - ekki hvað síst nú á niðurskurðartímum - að íslensk stjórnvöld standi í að niðurgreiða æfingarflug NATO-hermanna engum til gagns en fjölda fólks til ama. Að endingu fagna SHA því að Varnarmálastofnun hafi verið lögð niður í fyrradag.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …