Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður haldinn föstudagskvöldið 29. apríl n.k. Að þessu sinni munu fulltrúar í miðnefnd leggja til krásir á veglegt hlaðborð:
Kjúklingur í mangó-chutney meðstjórnandans
Kjúklingur í kúskús ritarans
Pastasalat formannsins
Blómkálsgratín skjalavarðarins
Brauð að hætti eiginmanns meðstjórnanda
Salat
Kaffi á eftir
Að borðhaldi loknu mun Una Hildardóttir, félagi í SHA og gjaldkeri VG, flytja stutta hugvekju um friðarmál og mótmælatrúbadorinn Hemúllinn tekur lagið.
Borðhald hefst kl. 19. Verð kr. 2000. Öll velkomin.