BREYTA

Bjartsýnisverðlaun Nóbels

Átti Barack Obama skilin Friðarverðlaunin? harpa stefansdottirEftirfarandi grein Hörpu Stefánsdóttur birtist í Smugunni 10. október 2009 Það fór eflaust kjánahrollur um marga þegar tilkynnt var að Barack Obama hefði hlotið Friðarverðlaun Nóbels. Obama fær verðlaunin ekki fyrir eitthvað sem hann hefur gert í raun og veru. Heldur sem einhverskonar hvatningu til þess að standa við stóru orðin um von og breytingar og stuðla að friði í framtíðinni. Obama fékk líka verðlaun árið 2008. Kosningaherferðin hans fékk Advertising Age markaðsverðlaunin, þau sömu og Apple fékk árið 2007. Hann var í kjölfarið sæmdur titlinum „Markaðsmaður ársins 2008“ (e. Marketer of the year 2008) Enda var kosningabaráttan mjög vel hönnuð auglýsingaherferð um vörumerkið Obama sem hreif marga með sér með innantómum frösum og slagorðum um von og óljósar breytingar. Það fór minna fyrir stefnumálunum. Ástæðurnar fyrir tilnefningunni eru af sama meiði og kosningaherferðin. Fallegar umbúðir en lítið innihald. Nóbelsnefndin segir að hann hafi komið af stað flóðbylgju vonar um allan heim. Það er hálfsorglegt að friðarverðlaunin séu veitt í eintómri von um eitthvað sem gæti gerst, veitt manni sem hefur ekki komið fram með neitt í friðarmálum annað en verðlaunaslagorð og innantóman fagurgala. Eitt það fyrsta sem kom upp í hugann á mér þegar ég frétti hver hefði hlotið verðlaunin var þegar Obama var spurður útí árás Ísraelsmanna á Gaza rétt fyrir innsetningarathöfnina. Hann lét eftirfarandi ummæli falla “Ef eldflaugar féllu þar sem dætur mínar tvær svæfu þá myndi ég gera allt sem í mínu valdi stæði til þess að stöðva það”. Hann var þó ekki að vísa til þeirra fjölmörgu palestínsku barna sem voru drepin með bandarískum vopnum í árásinni, undir því yfirskyni að Ísrael eigi rétt á að verja sig með fyrirbyggjandi aðgerðum. Obama kann að koma fyrir sig orði og heldur fallegar ræður. En hvers virði eru orð ef lítið er á bakvið þau. Ímyndin er kannski ný og fersk en það er erfitt að sjá einhverjar raunverulegar, róttækar breytingar frá utanríkisstefnu Bushstjórnarinnar. Því hefur verið haldið fram að hann fái verðlaunin í raun fyrir það eitt að vera ekki Bush. Það er ekki úr háum söðli að detta fyrir Obama sem hefur þó valdið mörgum sárum vonbrigðum. Það er stundum sagt að undir stjórn Obama sé allt öðruvísi en ekkert hafi breyst. Það sér ekki fyrir endann á hersetunni í Írak, það er ekki búið að loka Guantanamo og hernaðurinn á hinu svokallaða Afpak svæði fer stigversnandi. Hann er búinn að senda 20.000 hermenn til viðbótar til Afganistan og uppi eru áætlanir um að senda allt að 40.000 í viðbót. Obama virðist samþykkja „The Bush Doctrine“. Þ.e.a.s að Bandaríkin eigi fullkominn rétt á því að vernda sig með öllum tiltækum ráðum sig gagnvart ríkjum sem grunur leikur á að hylmi yfir með eða fjármagni hryðjuverkamenn. Það sést m.a. á því að undir stjórn Obama er sprengt í Pakistan nánast að vild, eins og mörg dæmi eru um. Í fyrstu viku hans í embætti voru sendar ómannaðar sprengjuflugvélar yfir landamæri Pakistans þar sem a.m.k 22 saklausir borgarar létu lífið, þar á meðal börn. Hann virðist í raun fylgja utanríkisstefnu Bush stjórnarinnar í mörgum málum, þ.á.m. í Palestínudeilunni þar sem hann vill auka hergagnaaðstoð til Ísraels með samningi til næstu tíu ára. Obamastjórnin hefur heldur ekkert gert í útþenslu landnemabyggðanna og stendur í vegi fyrir því að Ísraelsmenn þurfi að svara til saka fyrir hina grimmilegu árás á Gaza samkvæmt alþjóðalögum. Það er hægt að telja upp mörg svipuð dæmi. Friðarverðlaunin ætti að veita fyrir raunverulegar aðgerðir sem stuðla að friðsamari heimi. Það er skammarlegt að veita þessi verðlaun til leiðtoga stærsta og árásargjarnasta herveldis heims sem enn kyndir ófriðarbál um allan heim með gengdarlausum hernaði og hergangaframleiðslu. Þetta er auðvitað ekki í fyrsta skipti sem þessi verðlaun eru veitt í pólitískum tilgangi, sem einhverskonar hvatningarverðlaun til þjóðarleiðtoga. En væri ekki mikið áhrifaríkara að friðarverðlaunin fari til einstaklinga eða samtaka sem hafa helgað líf sitt baráttunni fyrir friði? Má í því tilliti nefna Noam Chomsky sem er enn á níræðisaldri óþreytandi við að tala fyrir friði og afvopnun og Dr. Mukwege frá Kongó (DRC). Sem hefur sett sig í stöðuga hættu og unnið þrekvirki við að bjarga lífi kvenna sem hafa orðið fyrir því hrottalega kynferðisofbeldi sem er orðið að faraldri í landinu. Það er til fullt af hugsjónafólki sem vinnur að friði án ofbeldisfullra málamiðlana. Þessi verðlaun eiga að tilheyra þeim. Harpa Stefánsdóttir

Færslur

SHA_forsida_top

Rjúfum 200 hluthafa múrinn!

Rjúfum 200 hluthafa múrinn!

Einkahlutafélagið Friðarhús SHA var stofnað 30. mars 2004 með kaup á húsnæði fyrir starfsemi SHA …

SHA_forsida_top

Alþjóðasamtök herstöðvaandstæðinga

Alþjóðasamtök herstöðvaandstæðinga

Alþjóðasamtök herstöðvaandstæðinga (International Network For The Aboliton Of Foreign Military Bases - No Bases …

SHA_forsida_top

Undirbúningsfundur v. friðargöngu

Undirbúningsfundur v. friðargöngu

Samstarfshópur friðarhreyfinga undirbýr friðargöngu á Þorláksmessu.

SHA_forsida_top

Aðalfundur Norðurlandsdeildar SHA

Aðalfundur Norðurlandsdeildar SHA

Aðalfundur Norðurlandsdeildar SHA var haldinn fimmtudaginn 30. nóvember. Rætt var um landsráðstefnu SHA og niðurstöðu …

SHA_forsida_top

Þunnur þrettándi frá sýslumanni

Þunnur þrettándi frá sýslumanni

Eins og kynnt hefur verið hér á Friðarvefnum fóru SHA fram á lögbann við för …

SHA_forsida_top

Styðjum baráttu fatlaðra í Palestínu. Gegn hernámi – fyrir réttindum og reisn

Styðjum baráttu fatlaðra í Palestínu. Gegn hernámi – fyrir réttindum og reisn

Í kvöld, miðvikudag, verður haldinn á Hótel Borg fundur í tilefni af alþjóðlegum samstöðudegi …

SHA_forsida_top

Aðalfundur Norðurlandsdeildar SHA

Aðalfundur Norðurlandsdeildar SHA

Aðalfundur Norðurlandsdeildar SHA verður haldinn n.k. fimmtudag í Barnaskólanum á Brekkunni ("Rósenborg") kl. 20. Í …

SHA_forsida_top

Fjáröflunarmálsverður í Friðarhúsi

Fjáröflunarmálsverður í Friðarhúsi

Fjáröflunarmálsverðir Friðarhúss hafa slegið í gegn og að þessu sinni verður efnt til veislu á …

SHA_forsida_top

Undirbúningsfundur v. friðargöngu

Undirbúningsfundur v. friðargöngu

Samstarfsnefnd friðarhreyfinga fundar kl. 20 í Friðarhúsi um undirbúning friðargöngu á Þorláksmessu.

SHA_forsida_top

Lærum af sögunni

Lærum af sögunni

Ályktun frá landsfundi SHA, 26. nóvember 2006 um hernaðarsamstarf við Norðmenn: Samtök hernaðarandstæðinga mótmæla …

SHA_forsida_top

Segjum upp herstöðvasamningnum

Segjum upp herstöðvasamningnum

Ályktun frá landsfundi SHA, 26. nóvember 2006 um uppsögn herstöðvasamningsins: Engum sem fylgst hefur …

SHA_forsida_top

Uppgjöri fagnað

Uppgjöri fagnað

Ályktun frá landsfundi SHA, 26. nóvember 2006: Landsfundur Samtaka hernaðarandstæðinga fagnar því uppgjöri sem …

SHA_forsida_top

Landsfundur SHA

Landsfundur SHA

Landsfundur SHA í Friðarhúsi

SHA_forsida_top

Nýtt nafn - sömu góðu samtökin

Nýtt nafn - sömu góðu samtökin

Landsfundur SHA var haldinn í Friðarhúsi í dag, sunnudag. Ný miðnefnd var kjörin á fundinum …

SHA_forsida_top

Breytt tímasetning málsverðar

Breytt tímasetning málsverðar

Fjáröflunarmálsverðir Friðarhúss hafa verið síðasta eða næstsíðasta föstudag í mánuði, en vakin er athygli á …