BREYTA

Dagskrá landsfundar SHA

Landsfundur SHA verður haldinn í Friðarhúsi 27.-28. nóvember. Setning fundarins verður kl. 18 á föstudeginum, á undan hátíðarmálsverði Friðarhúss sem hefst kl. 19. Á laugardeginum verða svo hefðbundin aðalfundarstörf frá kl. 11, en að loknum hádegismat verða flutt erindi af nýafstöðnu málþingi Norðurlandsdeildar SHA um friðar- og afvopnunarmál. 1. “Vald fjöldans: Andspyrna gegn heimsvaldabrölti í hnattvæddum heimi”. Edward Huijbens, dósent við HA fjallar um hugmyndir Michael Hardt og Antonio Negri um birtingarmyndir Valdsins og möguleika á andspyrnu gegn þeim 2. “Vestræn hernaðarstefna – sókn og hrunadans“. Þórarinn Hjartarson, sagnfræðingur, fjallar um hernaðarhyggju eftir tíma kalda stríðsins. Þinginu lýkur svo eigi síðar en kl. 17.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …