BREYTA

Er Evrópusambandið ekki friðarbandalag?

Haraldur Ólafsson, prófessor í veðurfræði við Háskóla Íslands og áhugamaður um friðar- og alþjóðamál ritaði eftirfarandi grein í síðasta hefti tímaritsins Dagfara, sem út kom í nóvember 2009. Greinin birtist hér á Friðarvefnum í heild sinni. Lítið hefur farið fyrir umræðu um hernað og vígvæðingu í hinu ákafa Evróputrúboði sem dunið hefur á Íslendingum að undanförnu. Líklega skýrist það af því að flestir sem kallaðir eru til að veita álit í fjölmiðlum koma úr hópi þeirra sem gera lítinn greinarmun á sameinuðu Evrópuríki og himnaríki. Þeir vilja alls ekki fæla frá söfnuðinum það fólk sem sefur ekki því betur sem meira er til af vígtólum í heiminum. Enn síður vilja þeir fæla þá burt sem óttast að hið nýja stórríki gömlu evrópsku nýlenduveldanna dragi tennur úr N-Atlantshafsbandalaginu, án þess að sýna sjálft viðeigandi röggsemi við að skrúfa saman nýjar sprengjur. Við slíkar aðstæður er skiljanlegt að Evróputrúboðið segi sem minnst um hernað og beini umræðu frekar að öllu því gulli og smjöri sem bíður Íslendinga ef þeir gerast þegnar í Evrópusambandinu. Lissabonsáttmálinn talar Eurocorps innsideTil að varpa ljósi á eðli Evrópusambandsins er nærtækast að lesa hið verðandi stjórnarskrárígildi sambandsins, Lissabonsáttmálann. Ljóst er sambandið verður ekki stækkað fyrr en sá sáttmáli hefur verið staðfestur af þeim sem fyrir eru. Í Lissabonsáttmálanum eru bálkar sem varða leið að hervæddu stórríki. Mikil áhersla er lögð á sameiginlega utanríkisstefnu og ljóst er að skoðun bandalagsins er að henni þurfi að fylgja eftir með hervaldi. Í 42. grein sáttmálans segir að sameiginleg öryggis- og hernaðarstefna(1) skuli mótast af framsækni og stefnt sé að sameiginlegum her þegar Æðsta ráðið (e. European Council) samþykkir slíkt samhljóða. Í sömu grein er fjallað um skuldbindingar aðildarríkja. Þar segir m.a.:”Aðildarríki skulu með hernaði og öðrum aðgerðum (e. civilian) framfylgja sameiginlegri öryggis- og hernaðarstefnu (e. defence policy) og ákvörðunum Ráðsins (e. the Council) þar að lútandi.” Síðar í sömu grein er hnykkt á vígbúnaðarskyldunni með orðunum ”Aðildarríki skulu sýna framsækni í vígvæðingu” sem með þjálari og skýrari hætti má orða svo: ”Aðildarríki skulu vígbúast af kappi”. Þá er fjallað með mörgum orðum um að hermálaþjónusta Evrópusambandsins sé til ráðgjafar við vígbúnað og styrkingu og þróun á hergagnaiðnaði. Þingið og foringjarnir tala Víða annars staðar í Lissabonsáttmálanum er fjallað um vígbúnað og hernað og settir eru fyrirvarar, m.a. um skörun við þátttöku í öðru hernaðarsamstarfi. En eins og ávallt þegar langur texti með ýmis konar tilvísunum á í hlut geta vaknað spurningar um túlkun. Þá er skynsamlegt að athuga hvað fyrirmenn bandalagsins hafa sjálfir sagt. Ekki þarf að leita lengi til að komast að því að mörgum valdamönnum innan sambandsins þykir verulega hafa vantað á röggsemi þegar kemur að hervæðingu og ef einhverju þurfi að breyta innan Evrópusambandsins, þá sé það að auka kappið við vígvæðinguna. Haft var eftir Romano Prodi, fyrrverandi höfuðpaur í sambandinu að hugmyndin um Evrópuher sé fúlasta alvara, en menn geti vitaskuld kosið að kalla hann öðru nafni ef það hentar(2). Ekki þarf að leita lengi til að finna að einn helsti höfðingi Ítalíu, Silvio Berlusconi, fagnar sérlega hervæðingu Evrópusambandsins með þeim orðum að loksins verði þá hægt að fylgja utanríkisstefnu eftir með þunga(3). Svo haldið sé áfram yfirreið um helstu hirðsali sambandsins lýsir Angela Merkel, kanslari Þýskalands, mikilvægi vígvæðingar sambandsins í viðtali snemma árs 2007(4). Í svipaðan streng tekur Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, þar sem hann segir hervæðingu Evrópusambandsins nauðsynlegt forgangsmál næstu árin(5). Í ljósi fyrri afreka þurfa menn lítt að efast um einlægan vilja breskra fyrirmanna á vettvangi vígbúnaðar og hernaðar. Heildarsýnin í þessum málum er deginum ljósari: Evrópusambandið stefnir að því sinna meintum hagsmunum sínum í skjóli þess að vera vel vígvætt herveldi. Á því er hnykkt með ályktun Evrópuþingsins 19. febrúar 2009 þar sem farið er refjalaust fram á 60.000 manna fastaher. Mikill meirihluti þingsins samþykkti ályktunina. Við hljótum að spyrja: Eiga Íslendingar samleið með þessu liði? Peningurinn talinn Þeir eru til sem þykir vanta á vígvæðingu heimsins og að brýnt sé að Íslendingar leggi þar hönd á plóg. Þeir hinir sömu segjast ekki sjá eftir nokkrum krónum í svo verðugt verkefni, en hversu margar yrðu þær krónur? Ekki þykir ofrausn að ”siðaðar” þjóðir verji andvirði 2-4% af þjóðarframleiðslu til hernaðar og vígbúnaðar. Sumum þjóðum þykir það lítið og Tyrkir, sem nú banka fast á dyr Evrópusambandsins, telja ekki eftir sér að reiða fram andvirði um 5% þjóðarframleiðslunnar til hermála. Ef Íslandshreppur Evrópusambandsins slyppi með að vera í lægri kantinum yrði því um að ræða um þrjá tugi milljarða króna á ári fyrir íslenskt samfélag. Það samsvarar rekstri allra grunnskóla í Reykjavík ásamt framlagi ríkisins til Háskóla Íslands. Þykir flestum muna um minna. Þess yrði svo ekki langt að bíða að upp kæmu hugmyndir um að ná peningnum aftur. Munu þá fulltrúar ”uppbyggingar” og Evróputrúboðar ná saman í áætlun um verksmiðju handa Íslendingum til að mylja púður ofan í fallstykki gömlu evrópsku herveldanna? Þegnar hins nýja stórríkis Nú kynni einhver að spyrja hvort þetta sé ekki allt einhver misskilningur. Nóg er að skrúfa frá útvarpi eða sjónvarpi til að heyra íslenska Evróputrúboða keppast hvern um annan þveran við að útskýra að Evrópusambandið sé og verði um ókomna framtíð aðeins samband fullvalda ríkja, eins konar staðlaráð og vettvangur til að ræða heimsins gagn og nauðsynjar. Það er rangt. Enginn sem fylgst hefur með umræðu innan Evrópusambandsins um hinn svokallaða Evrópusamruna þarf að velkjast í vafa um hvert stefnt er í þeim málum, nefnilega að hervæddu stórríki. Í raun þarf ekki að lesa lengra en í 9. grein Lissabonsáttmálans sem tekur af vafa um stöðu fólksins í hinu nýja Evrópusambandi, en þar segir orðrétt: ”Sérhver þegn ríkja Evrópusambandsins skal vera þegn Evrópusambandsins” Eru það örlög sem við hugsum okkur og afkomendum okkar? Heimildir: 1) Hér er fylgt þeim sið að þýða ”defence” sem ”hernaður”. 2) The Independent, 4. febrúar 2000a 3) Nationen, 13. desember 2003a 4) Bild Zeitung, 23. mars 2007a 5) Ræða í Elyséehöll í París, 18. janúar 2008. http://www.elysee.fr/ a) haft eftir Amund Vik í júní 2007. http://www.neitileu.no/kunnskapsbank/forsvar_og_sikkerhet

Færslur

SHA_forsida_top

Det Danske Fredsakademi

Det Danske Fredsakademi

Það er full ástæða til að vekja athygli á danska vefnum Det Danske Fredsakademi. …

SHA_forsida_top

Íslenska friðargæslan?

Íslenska friðargæslan?

Sjá myndbandið The Icelandic Crisis Response Unit

SHA_forsida_top

Þörf á ítarlegri rannsókn á mengun á herstöðvasvæðunum

Þörf á ítarlegri rannsókn á mengun á herstöðvasvæðunum

Í Blaðinu hefur undanfarna daga verið fjallað um mengun af völdum hersins á Suðurnesjum. Margir …

SHA_forsida_top

Hvers vegna?

Hvers vegna?

Í þessari grein, sem birtist í Morgunblaðinu 4. júní 2006, hrekur Vigfús Geirdal staðhæfingar …

SHA_forsida_top

Friðarsinnar eða heimsvaldaandstæðingar?

Friðarsinnar eða heimsvaldaandstæðingar?

eftir Þórarin Hjartarson Vér herstöðvaandstæðingar verðum að ræða grundvöll starfs SHA í breyttu landi …

SHA_forsida_top

Menningarnótt í Friðarhúsi

Menningarnótt í Friðarhúsi

Dagskrá á vegum SHA í Friðarhúsi í tilefni Menningarnætur. Húsið verður opnað kl. 15 og …

SHA_forsida_top

Spennandi dagskrá á Menningarnótt

Spennandi dagskrá á Menningarnótt

Næstkomandi laugardag verður efnt til menningarnætur í Reykjavík. Að því tilefni verður staðið fyrir margvíslegri …

SHA_forsida_top

Þegar vopnahlé er ekki vopnahlé

Þegar vopnahlé er ekki vopnahlé

STOP THE WAR COALITION - NEWSLETTER No. 2006/34 15 August 2006 Ef ályktun Öryggisráðs …

SHA_forsida_top

Miðnefndarfundur SHA

Miðnefndarfundur SHA

Miðnefnd SHA fundar í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

Fundur VIMA

Fundur VIMA

Fundur VIMA í Friðahúsi

SHA_forsida_top

Þá eru þær farnar - hverjum er ekki sama?

Þá eru þær farnar - hverjum er ekki sama?

Stöndum frekar saman - fordómalaus!

SHA_forsida_top

http://fridur.is/libanon/

http://fridur.is/libanon/

Við höfum tekið saman lista yfir efni tengt átökunum í Líbanon sem hefur birst á …

SHA_forsida_top

Minnumst kjarnorkuárásanna á Hirósíma og Nagasakí

Minnumst kjarnorkuárásanna á Hirósíma og Nagasakí

Ræða Ragnars Stefánssonar við kertafleytingu á Akureyri, 9. ágúst, 2006 Þessi grimmdarlega árás endurspeglaði …

SHA_forsida_top

Velheppnaðar kertafleytingar í Reykjavík og á Akureyri

Velheppnaðar kertafleytingar í Reykjavík og á Akureyri

Kertafleytingar fóru fram í gærkvöldi, 9. ágúst, í Reykjavík og á Akureyri í minningu fórnarlamba …

SHA_forsida_top

Lítið samráð við verkalýðshreyfinguna vegna brottfarar hersins - framtíð 360 starfsmanna enn óráðin

Lítið samráð við verkalýðshreyfinguna vegna brottfarar hersins - framtíð 360 starfsmanna enn óráðin

Skv. frétt í Ríkisútvarpinu í dag hefur formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis gagnrýnt …