BREYTA

Félagsfundur SHA: Afvopnun eða vígvæðing – hvað er á seyði í öryggismálum Íslendinga?

afvopnun Samtök hernaðarandstæðinga efna til opins félagsfundar mánudagskvöldið 23. febrúar kl. 20 í Friðarhúsi, Njálsgötu 89. Gestur fundarins verður Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis. Það er margt að gerast á sviði hernaðar- og afvopnunarmála sem Íslendingar ættu að láta sig varða. Á dögunum var kynnt skýrsla Thorvalds Stoltenbergs með tillögum um norrænt hernaðarsamstarf. Tillögur liggja fyrir Nató um stofnun fastahers. Árekstur kjarnorkukafbáta í Atlantshafi hefur rifjað upp gamlar kröfur um kjarnorkufriðlýsingu. Og deilt er um stöðu og framtíðarhlutverk Varnarmálastofnunar. Rætt verður um þessi mál og fleiri á fundinum. Allir velkomnir.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …