BREYTA

Félagsfundur SHA: Góður gestur frá Bretlandi

Miðvikudagskvöldið 26. október kl. 20 efna Samtök hernaðarandstæðinga til félagsfundar í Friðarhúsi. Tilefnið er koma breska róttæklingsins og friðarsinnans Martyn Lowe til landsins. Martyn Lowe hefur áratuga reynslu af baráttu á sviði friðarmála, ekki hvað síst í þágu baráttunnar gegn kjarnorkuvopnum. Nánar má fræðast um ferilskrá hans hér. Þótt Lowe sé kominn á eftirlaun, hefur hann sjaldan verið virkari. Um þessar mundir hefur hann t.d. sérstaklega sinnt baráttu gegn vígvæðingu í almennum vörusiglingum, sem réttlætt hefur verið með auknum sjóránum. Bloggsíða Martyns Lowe varpar ljósi á fjölbreytt áhugamál hans. Allir velkomnir.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …