BREYTA

Fimmtudagsfundur um stefnuskrá

Stefnuskrá Samtaka herstöðvaandstæðinga var samþykkt á landsráðstefnu síðla árs 1995. Stefnt er að því að ræða stefnuskránna á aðalfundi SHA laugardaginn 5. nóvember næstkomandi og er undirbúningsvinna þegar hafin. Fimmtudagskvöldið 20. október kl. 20 verður boðað til fundar í Friðarhúsi, nýjum húsakynnum SHA á horni Snorrabrautar og Njálsgötu. Þar verður dreift drögum að nýrri stefnuskrá í framhaldi af umræðum á síðasta fundi og er markmiðið að þróa þær tillögur áfram fyrir aðalfundinn. Herstöðvaandstæðingar eru sem fyrr hvattir til að mæta og ræða um grundvallaratriðin í baráttu hreyfingarinnar. Heitt á könnunni og léttar veitingar á vægu verði.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …