BREYTA

Fjáröflunarmálsverður, föstudag

Fyrsti fjáröflunarmálsverður Friðarhúss á þessu haustmisseri verður haldinn föstudagskvöldið 24. september. Matseðillinn verður á spænskum nótum og geta jafnt kjöt- og grænmetisætur fengið eitthvað við sitt hæfi: * Spænskur uxahalapottréttur og kúskús * Spænsk lauksúpa * Avocado, appelsínu og möndlusalat * Rauðrófusalat Yfirkokkar að þessu sinni eru mæðginin Súsanna Svavarsdóttir og Kolbeinn Hólmar Stefánsson. Að borðhaldi loknu mun Ásgeir H. Ingólfsson ræða um stöðu Roma-fólks í Austur-Evrópu, en málefni þessa hóps hafa talsvert verið umræðunni upp á síðkastið. Sest verður að snæðingi kl. 19, en húsið verður opnað hálftíma fyrr. Verð kr. 1.500.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …