BREYTA

Fjáröflunarmálsverður októbermánaðar

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss í október verður haldinn föstudagskvöldið 25. október. Matseldin verður að þessu sinni í hópi nokkurra yngri félagsmanna. Matseðill:
  • Lasagne
  • Grænmetislasagne
  • Ferskt salat & hvítlauksbrauð
  • Eftirréttur: Eplahraun að hætti hraunavina
Að borðhaldi loknu mun Jón Ögmundur Þormóðsson lögfræðingur kynna stórmerkilega bók sína sem hefur að geyma yfirgripsmikið safn tilvitnana um friðarmál. Peace and War: Niagara of Quotations (Friður og stríð: Hafsjór af tilvitnunum). Borðhald hefst kl. 19. Allir velkomnir. Athugið nýtt verð: 2.000 kr.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …