Landsfundur SHA var haldinn í Friðarhúsi 25.-26. nóvember. Ný miðnefnd var kjörin á fundinum. Hana skipa:
Auður Lilja Erlingsdóttir, Bergljót Njóla Jakobsdóttir, Elías Jón Guðjónsson, Harpa Stefánsdóttir, Hildur Lilliendahl, Sigurður Flosason, Stefán Pálsson (formaður), Þorvaldur Þorvaldsson og Þórir Hrafn Gunnarsson. Varamenn: Jóhann Páll Jóhannsson, Kolbeinn Hólmar Stefánsson, Snæbjörn Guðmundsson.
Þrjár ályktanir voru samþykktar á fundinum:
1. Ályktun um herskipakomur
Landsfundur Samtaka hernaðarandstæðinga fagnar þeirri stefnubreytingu sem orðið hefur hjá borgaryfirvöldum í Reykjavík í garð herskipa sem hingað leita til hafnar. Um langt árabil hafa slíkir aðilar þótt aufúsugestir í ráðhúsinu og verið fagnað með veislum og móttökum. Greinileg breyting hefur orðið á viðhorfi stjórnenda borgarinnar í þessu efni á liðnum misserum. SHA lýsa yfir ánægju með að þetta hefur orðið til að fækka verulega herskipakomum.
SHA hvetja borgina til að úthýsa þessum gestum með öllu. Þá árétta þau þá kröfu til Alþingis að Ísland og íslensk landhelgi verð nú þegar friðlýst fyrir umferð kjarnorkuvopna. Minnt er á að þorri sveitarfélaga á Íslandi hefur þegar samþykkt slíka kjarnorkufriðlýsingu, höfuðborgin þar á meðal.
2. Ályktun um alþjóðamál
Landsfundur Samtaka hernaðarandstæðinga minnir á þá eindregnu kröfu friðelskandi fólks að Ísland gangi nú þegar úr árásarbandalaginu Nató. Bandalagið hefur orðið árásargjarnara með hverju árinu sem líður, eins og gleggst kom fram í stríðinu í Líbýu, þar sem Nató og helstu forysturíki þess brutu á gegn alþjóðalögum, grófu undan stöðu Sameinuðu þjóðanna og ollu gríðarlegum hörmungum í landinu, sem ekki sér fyrir endann á.
Jafnframt lýsa samtökin áhyggjum af þeim stríðsæsingum sem einkenna utanríkisstefnu Bandaríkjastjórnar um þessar mundir og virðist nánast óhjákvæmilegur fylgifiskur forsetakosninga þar í landi. Hugmyndir sem ræddar eru opinskátt um mögulega árás á Íran eru hreint feigðarflan og sama má segja um síaukinn hernað í Pakistan. Í nágrannaríkinu Afganistan hefur nú staðið stríð í samfellt áratug með virkri þátttöku Nató. Það verður tafarlaust að stöðva.
3. Ályktun um aðgerðir gegn vopnavaldi
Landsfundur Samtaka hernaðarandstæðinga, haldinn í Friðarhúsi 25.-26. nóvember 2011, æskir þess að íslensk stjórnvöld leggi þá steina, sem það getur í götu hernaðar og heimsvaldastefnu. Í því skyni skora samtökin á ríkisstjórn og Alþingi að sjá til þess, að svo lengi sem landið er í Atlantshafsbandalaginu greiði fastafulltrúi þess þar ávallt atkvæði gegn beitingu hervalds af nokkru tagi. Með því að koma í veg fyrir einróma samþykki, getur okkar litla land lagt sitt af mörkum til að spilla fyrir kúgurum þjóðanna, og þannig leiðir þó eitthvað gott af annars illri og vonandi tímabundinni veru okkar í þessu ólukkans bandalagi, auk þess sem þessi afstaða gæti vonandi stuðlað að brottrekstri Íslands úr því. Jafnframt beina samtökin því, sér í lagi, til þeirra félaga sinna, sem sæti eiga á Alþingi og/eða í ríkisstjórn, að halda þessari stefnu fram.

Reykjavíkurakademían efnir til málþings fimmtudaginn 18. maí milli kl. 16:30 og 18:30. Umræðuefnið er mótmæli …

Enn einu sinni hefur það verið staðfest að sænska þjóðin kærir sig ekki um að …

Í síðustu viku var gefin út í Bandaríkjunum áskorun til George W. Bush forseta …

Á annarri síðu Fréttablaðsins laugardaginn 12. maí er lítil en athyglisverð frétt og reyndar mjög …

Friðarhús er í útláni þetta kvöld.

Undirskriftalisti gegn áformum um árás á Íran. Skráið ykkur. Hvert nafn skiptir máli. Bandaríkjamenn …

„Jeppar og jakkaföt, kynjamyndir í íslenskri utanríkisstefnu“ heitir erindi sem Birna Þórarinsdóttir stjórnmálafræðingur og framkvæmdastýra …

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Friðarhúss SHA ehf.

Aðalfundur Friðarhúss SHA ehf. var haldinn laugardaginn 6. maí. Fram kom að áætlanir félagsins um …

Aðalfundur Friðarhúss SHA ehf.

„Það virðist engin áhrif hafa,“ segir Ögmundur Jónasson á heimasíðu sinni í dag, „hvorki á …

Svo spyr Jón Ólafsson prófessor á Bifröst í grein á Kistunni 11. apríl síðastliðinn. …

Stjórnarfundur Friðarhúss SHA ehf. Aðalfundur undirbúinn.

Fjórða evrópska samfélagsþingið (European Social Forum) hefst í Aþenu 4. maí og stendur til …

Aðalfundur Friðarhúss SHA ehf. verður haldinn í húsnæði félagsins laugardaginn 6. maí n.k. og hefst …