Íslenskir friðarsinnar hafa efnt til friðargöngu niður Laugaveginn á Þorláksmessu í rúmlega þrjá áratugi. Óhætt er að segja að gangan sé orðin ómissandi þáttur í jólaundirbúningnum og tekur fjöldi fólks sér hlé frá tiltektum og innkaupum rétt fyrir jólin til að leggja sitt af mörkum og styðja kröfuna um frið og afvopnun í heiminum. Undanfarin ár hafa slíkar göngur einnig verið á Akureyri og á Ísafirði og verður svo einnig nú.
Sem fyrr stendur Samstarfshópur friðarhreyfinga fyrir göngunni í Reykjavík þann 23.desember. Safnast verður saman á Hlemmi frá klukkan 17:45 og leggur gangan af stað klukkan 18:00. Fólk er hvatt til að mæta tímanlega.
Að venju munu friðarhreyfingarnar selja kerti fyrir göngufólk á Hlemmi. Í lok göngu verður fundur við hótel Vík (v. Ingólfstorg) þar sem Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík flytur ávarp en fundarstjóri er Drífa Snædal.
Söngfólk úr Hamrahlíðarkórnum og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur í göngunni og við lok fundar undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur.
Samstarfshópurinn minnir á að málstaður og rök friðarsinna skipta jafn miklu máli nú og fyrir þrjátíu árum. Stöðugt berast fregnir af ofbeldisverkum þjóða á milli og innan samfélaga. Óheyrilegum fjárhæðum er enn sóað í vígvæðingu og ekkert lát virðist á hernaðarátökum í heiminum.
Samstarfshópur friðarhreyfinga:
* Félag leikskólakennara.
* Friðar- og mannréttindahópur BSRB
* Friðar- og mannréttindanefnd Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar
* Menningar og friðarsamtökin MFÍK
* Samhljómur menningarheima
* Samtök hernaðarandstæðinga
* SGI á Íslandi mannúðar og friðarsamtök búddista
* * *
Ísafirði verður einnig friðarganga klukkan 18 á Þorláksmessu. Gengið verður frá Ísafjarðarkirkju að Silfurtorgi þar sem Lúðrasveit tónlistarskóla Ísafjarðar mun spila, ræðumaður dagsins verður Dagur Hákon Rafnsson.
* * *
Friðarframtak – sem stendur að árlegri Blysför í þágu friðar á Þorláksmessu á Akureyri – sendir frá sér fréttatilkynningu:
Stríðin eru heimshörmung. Nýju stríðin tengjast efnahagslegum hagsmunum og ójöfnuði. Í Bosníu, Kosovo, Afganistan, Írak, Palestínu, Líbíu, Sýrlandi. Þessi stríð tengjast lika endalausum vestrænum íhlutunum undir merkjum mannréttinda og mannúðar en snúast í raun um olíu, vopnaframleiðslu, auðlindir og átök stórvelda um áhrifasvæði. Ísland ber líka sína ábyrgð. Krafan er um frið og að Ísland eigi enga aðild að stríði né hernámi.