BREYTA

Friðarhús - Njálsgötu 87

427175377EUHtYW ph 23. apríl 2009 Þann 19. ágúst 2005 varð langþráður draumur að veruleika þegar Friðarhús SHA ehf festi sér húseignina á Njálsgötu 87, á horni Snorrabrautar. Friðarhús SHA ehf var stofnað 30. mars 2004. Tilgangur þess er að eiga og reka húsnæði fyrir Samtök hernaðarandstæðinga og skapa vettvang fyrir miðstöð friðar- og afvopnunarbaráttu á Íslandi. Stofnfélagar voru 15 með 1,18 milljónir króna, þar af átti SHA 500 þúsund sem þau eiga enn. Í apríl 2009 eru félagar orðnir 269 og innborgað hlutafé 7,4 milljónir króna. Kaupverðið var 9,5 milljónir. Í október 2008 var borgað upp bankalán löngu fyrr en björtustu vonir gerðu ráð fyrir. Nú eru einu skuldir félagsins verðtryggt lán frá SHA, sem stendur í 1,7 milljónum. Byrjað er að greiða það niður. Það sem vantar í þessar upphæðir eru tekjur af mánaðarlegum kvöldverðum, sem við stöndum fyrir, og gerðu okkur kleyft að borga lánið upp. Síðan höfum við fengið nokkra styrki frá velunnurum og ómælda sjálfboðavinnu til að gera húsið í stand. Á aðalfundinum 1. mars 2009 var farið yfir rekstrar og eignastöðu félagsins. Í ljósi þess að félagið stendur mjög vel og eignastaða er langt umfram innborgað hlutafé ákvað fundurinn að eftir 30. apríl 2009 skyldi verð á nýjum hlutum vera fimmtán þúsund krónur í stað tíu þúsund. Þessi hækkun er tæplega vísitöluhækkun frá stofnun félagsins fyrir 5 árum. Hér hefur sumsé verið farin öfug leið miðað við hinn almenna fjármálamarkað. Þeir sem vilja gerast hluthafar eða bæta við sig geta lagt beint inn á reikning nr. 0130-26-2530 í eigu Friðarhúss, kt. 6004042530. Innleggsnótan gildir sem kvittun en koma þarf fram í texta hver leggur inn og hvort þetta sé styrkur eða hlutur. Hver hlutur er tíuþúsund krónur fram að 30. apríl 2009 en framvegis fimmtánþúsund krónur. Frekari upplýsingar veita Sigurður Flosason gjaldkeri SHA, sími 554 0900, Sigríður Gunnarsdóttir gjaldkeri Friðarhúss, sími 552 4346, Elvar Ástráðsson, sími 561 5549, Stefán Pálsson, sími 617 6790. Staðsetning Friðarhúss er eins og best verður á kosið, 100 metra frá Laugaveginum og áberandi gluggar snúa að fjölfarinni umferðargötu. Eignin er að 1/3 á fyrstu hæð með sérinngangi og síðan gengið niður hálfa hæð í hinn hlutann. Skráð stærð er 125 fm og stærsta opna pláss er um 70 fm. Nú er ekki markmið SHA að binda fjármuni í fasteignum en miðað við þann veruleika sem blasir við er mun hagstæðara fyrir félagsmenn að kaupa en leigja húsnæði fyrir samtökin. Í Friðarhúsinu má hæglega halda 60 manna samkomur og 100 manns geta setið á fyrirlestri. Gott veggpláss nýtist til hverskonar sýninga og góð aðstaða er fyrir skrifstofurekstur og geymslur fyrir eigur SHA. Hér er lítið eldhús, sem nýtist vel fyrir kaffifundi og einstaka málsverði. 50 manns geta setið til borðs og ef allt pláss er nýtt er hægt að koma fyrir 70. Skjávarpi er fyrir fundi, fyrirlestra og kvikmyndasýningar. Ýmis önnur félög hafa nýtt sér aðstöðuna, svo sem MFÍK, Félagið Ísland-Palestína, umhverfishópar, ungliðahreyfingar og fleiri sem eru með smáfundi. Sjá myndir úr Friðarhúsi. Úr lagagreinum félagsins og stofnfundargerð

Færslur

SHA_forsida_top

Pöbb kviss Nató-andstæðingsins, 30. mars

Pöbb kviss Nató-andstæðingsins, 30. mars

Miðvikudagskvöldið 30. mars n.k. minnast hernaðarandstæðingar þess að Ísland gekk í Nató á þeim degi …

SHA_forsida_top

Enginn er eyland - ráðstefna á Akureyri

Enginn er eyland - ráðstefna á Akureyri

Samtök hernaðarandstæðinga áttu fulltrúa á ráðstefnu Háskólans á Akureyri og utanríkisráðuneytisins um alþjóðamál um liðna …

SHA_forsida_top

Málsverður & Bjartmar á föstudaginn langa

Málsverður & Bjartmar á föstudaginn langa

Samtök hernaðarandstæðinga láta ekki deigan síga þótt föstudaginn langa beri upp á síðasta föstudag mánaðarins. …

SHA_forsida_top

Landsfundur SHA

Landsfundur SHA

Landsfundur Samtaka hernaðarandstæðinga fór fram í dag. Fundurinn var afar líflegur og samþykkti fundurinn m.a. …

SHA_forsida_top

Aðalfundir á döfinni

Aðalfundir á döfinni

Aðalfundaglaðir friðarsinnar geta glaðst því tveir slíkir fundir eru framundan. Sunnudaginn 6. mars kl. 14 …

SHA_forsida_top

Herferðin gegn Líbíu – nýju aðferðirnar prófaðar

Herferðin gegn Líbíu – nýju aðferðirnar prófaðar

Þórarinn Hjartarson á Akureyri, félagsmaður í SHA, sendi Friðarvefnum þennan pistil um stríðið í Líbíu. …

SHA_forsida_top

Veitum friðarsinnum hæli - ályktun miðnefndar

Veitum friðarsinnum hæli - ályktun miðnefndar

Vegna fregna af mögulegri brottvísun hælisleitenda sem flúið hafa land sitt eftir að hafa neitað …

SHA_forsida_top

Febrúarmálsverður í Friðarhúsi

Febrúarmálsverður í Friðarhúsi

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður föstudaginn 26. febrúar. Kokkar eru Lára Jóna, Þorvaldur og Alvin - sem …

SHA_forsida_top

Fjáröflunarmálsverður janúarmánaðar

Fjáröflunarmálsverður janúarmánaðar

Fyrsti fjáröflunarmálsverður ársins 2016 verður í Friðarhúsi föstudagskvöldið 29. janúar n.k. Kokkarnir kvöldsins verða sómaparið …

SHA_forsida_top

Fyrsta stríðið?

Fyrsta stríðið?

Fornleifafræðingar í Kenýa hafa fundið á 10 þúsund ára gröf með líkum manna sem bera …

SHA_forsida_top

Rússum refsað. Hæfur dómari? Réttmæt refsing?

Rússum refsað. Hæfur dómari? Réttmæt refsing?

Þórarinn Hjartarson á Akureyri, félagsmaður í SHA, sendi Friðarvefnum þennan pistil um „stríðið gegn hryðjuverkum“. …

SHA_forsida_top

Miðnefnd SHA tekur Illuga opnum örmum

Miðnefnd SHA tekur Illuga opnum örmum

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundi miðnefndar Samtaka hernaðarandstæðinga í kvöld. Samtök hernaðarandstæðinga fagna …

SHA_forsida_top

Vestrið og gerfistríðið við ISIS

Vestrið og gerfistríðið við ISIS

Þórarinn Hjartarson á Akureyri, félagsmaður í SHA, sendi Friðarvefnum þennan pistil um „stríðið gegn hryðjuverkum“. …

SHA_forsida_top

Friðargönguræða - Ísafirði

Friðargönguræða - Ísafirði

Ég tel mig vita að það sé hefð fyrir því í friðargöngu að rifja upp …

SHA_forsida_top

Friðargöngur á Þorláksmessu

Friðargöngur á Þorláksmessu

Friðarganga á Þorláksmessu hefur verið fastur liður í Reykjavík frá árinu 1981. Gengið …