BREYTA

Fullveldisfögnuður í Friðarhúsi

Föstudagskvöldið 29. nóvember verður fjáröflunarmálsverður Friðarhúss haldinn, glæsilegur að vanda. Guðrún Bóasdóttir (Systa) sér um matseldina með dyggri aðstoð Sigríðar Kristinsdóttur Matseðill:
  • Heimalöguð sænsk jólaskinka með kartöflusalati, og sinnepssósu
  • Heimagerð lifrakæfa og heimagert rúgbrauð 
  • Reykt nautatunga með piparrótarrjóma
  • Hnetusteik
  • Karrýsíld
  • Tómatsalsasíld
  • Rækjufrauð
  • Kaffi og smákökur
Að borðhaldi loknu ræðir Guðrún Margrét Guðmundsdóttir um dróna og duldar hliðir stríðsins gegn hryðjuverkum. Svavar Knútur tekur lagið. Sest verður að snæðingi kl. 19. Verð kr. 2.000. Allir velkomnir.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …