BREYTA

Fundað á Akureyri

Samtök hernaðarandstæðinga á Norðurlandi efna til opins fundar um heimsvaldastefnu og hernaðarhyggju í samtímanum. Fundurinn verður haldinn sunnudaginn 22. nóvember 2009 í sal Zontafélagsins á Akureyri, Aðalstræti 54A, klukkan 14.00. Erindi: 1. “Vald fjöldans: Andspyrna gegn heimsvaldabrölti í hnattvæddum heimi”. Edward Huijbens, dósent við HA fjallar um hugmyndir Michael Hardt og Antonio Negri um birtingarmyndir Valdsins og möguleika á andspyrnu gegn þeim 2. “Vestræn hernaðarstefna – sókn og hrunadans“. Þórarinn Hjartarson, sagnfræðingur, fjallar um hernaðarhyggju eftir tíma kalda stríðsins. Fundurinn er opin öllum. Farið verður fram á 500 króna kaffigjald frá þeim sem eru aflögufærir.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …