BREYTA

Gegn innrás í Íran - stöðvum stríðið áður en það byrjar!

iraq your are next Hafin er undirskriftasöfnun og barátta gegn hugsanlegri árás Bandaríkjanna á Íran. Í því skyni hefur verið sett upp vefsíðan StopWarOnIran.org. Hægt er að skrifa undir yfirlýsinguna hér: http://stopwaroniran.org/petition.shtml. Yfirlýsingin er svohljóðandi í íslenskri þýðingu: Það er okkur mikið áhyggjuefni að á ný virðast vera í uppsiglingu stríðshótanir af hálfu Bandaríkjanna – að þessu sinni gagnvart írönsku þjóðinni. Fjölmiðlar eru uppfullir af fréttum um meinta kjarnorkuógn af hálfu Írans og væntanlegri nauðsyn þess að Bandaríkin grípi til hernaðaraðgerða. Þessar fréttir minna á sögurnar um „gjöreyðingarvopn“ sem komið var á flot áður en Íraksstríðið hófst. Í aðdraganda hinnar ólöglegu innrásar í Írak staðhæfði ríksstjórn Bush að Írak réði yfir miklum birgðum gjöreyðingarvopna og gæti gert árás – með kjarnorku-, efna- eða sýklavopnum – á Bandaríkin með 45 mínútna fyrirvara. Bush Bandaríkjaforseti sagði Bandaríkin verða að gera árás án tafar og „gætu ekki beðið eftir eftir lokasönnuninni – byssureyknum – sem mundi birtast sem sveppaský.“ Við vitum það nú að öll þessi áróðursherferð byggðist á algerum uppspuna sem var settur saman í þeim tilgangi að réttlæta árásarstríð. Nú sjáum við fréttir sem eru sambærilegar og þjóna þeim tilgangi að réttlæta hernaðaraðgerðir gegn írönsku þjóðinni. Að stefna Íran fyrir Öryggisráðið er forspil að einhliða aðgerðum. Rétt eins og í Íraksmálinu standast fullyrðingar Bandaríkjastjórnar ekki nánari skoðun. Íran hefur undirgengist uppáþrengjandi og niðurlægjandi eftirlit sem er langt umfram það sem Samningurinn um takmörkun kjarnorkuvopna (NPT-samningurinn) krefst. Þetta eftirlit hefur ekki leitt í ljós neinar sannanir um að Íran sé að þróa áætlanir um kjarnorkuvopn. Það er aðeins ein ríkisstjórn sem hefur beitt kjarnorkuvopnum gegn óbreyttum borgurum og það sama ríki hefur mestar birgðir gjöreyðingavopna í heiminum. Og á þessu augnabliki er þetta ríki að þróa nýja kynslóð kjarnorkuvopna og er ætlunin að beita þeim til árása en ekki bara til varnar. Þetta ríki er að sjálfsögðu Bandaríkin. Ætti ekki öll virkileg umræða um hættuna af kjarnorkuvopnum líka að taka til vopnabirgða Pentagons og sögu árása og íhlutana Bandaríkjanna? Íran hefur mátt þola mikið af Bandaríkjunum. Við minnum á að Bandaríkin stóðu fyrir því að lýðræðislega kjörinni ríkisstjórn Dr. M. Mossadegh var steypt á sínum tíma og völdin færð í hendur keisara páfuglskrúnunnar – „tilkomumesta afrek CIA“. Í aldarfjórðung stjórnaði keisarinn Íran með harðri hendi í þágu bandarísku olíufyrirtækjanna áður en alþýða landsins steypti stjórn hans með hræðilegum mannfórnum. Síðastliðin 27 ár hafa refsiaðgerðir Bandaríkjanna staðið í vegi fyrir rétti Írans til þróunar og leitt miklar þjáningar yfir íbúa landsins. Það er nauðsynlegt að nú láti allir þeir sem eru andvígir nýju stríði í Mið-Austurlöndum í sér heyra. Við krefjumst þess að herferð Bandaríkjanna fyrir refsiaðgerðum, fjandskap og upplognum ásökunum gagnvart írönsku þjóðinni linni. Við lýsum andstöðu okkar við endurnýjaðri aðför Bandaríkjanna að Íran. Það er þörf á aðstoð við að uppfylla grunnþarfir fólks, ekki endalausu stríði til að skapa heimsveldi. Undir þetta skrifuðu og sendu áfram til frekari undirskrifta eftirtaldir: Thomas Gumbleton, biskup, erkibiskupsdæmi Detroit, fyrsti forseti Pax Christi Filipe C Teixeira, biskup Michael Parenti, rithöfundur Ramsey Clark, fyrrum dómsmálaráðherra Bandaríkjanna Howard Zinn, rithöfundur og sagnfræðingur George Galloway, þingmaður, Bretlandi Tony Benn, þingmaður, Bretlandi Denis J. Halliday, fyrrum aðstoðarmaður aðalritara Sameinuðu þjóðanna í Írak Harold Pinter, leikritaskáld, handhafi bókmenntaverðlauna Nóbels 2005 Margarita Papandreou, ekkja Andreas Georgios Papandreou forsætisráðherra Grikklands Ardeshir Ommani, stofnfélagi í American-Iranian Friendship Committee (AIFC) Ervand Abrahamian, prófessor í sagnfræði, höfundur Between Two Revolutions David N. Rahni, íranskur prófessor í New York David Sole, formaður UAW (United Automobile), Aerospace and Agricultural Implement Workers of America) , Local 2334, Detroit Steve Gillis, formaður President, USWA (United Steelworkers) Local 8751

Færslur

SHA_forsida_top

Fótbolti í friðarhúsi

Fótbolti í friðarhúsi

HM í knattspyrnu stendur nú sem hæst. Ákveðið hefur verið að allir leikir keppninnar frá …

SHA_forsida_top

Hálf öld frá fyrstu Keflavíkurgöngunni

Hálf öld frá fyrstu Keflavíkurgöngunni

Þann 19. júní 1960 var í fyrsta sinn efnt til Keflavíkurgöngu frá hlið herstöðvarinnar á …

SHA_forsida_top

Stýrihópur Feministafélagsins

Stýrihópur Feministafélagsins

Stýrihópur Feministafélagsins fundar í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

Dagskráin á 1.maí

Dagskráin á 1.maí

Fyrsti maí er alltaf stór dagur hjá Samtökum hernaðarandstæðinga. Hið víðfræga morgunkaffi SHA verður haldið …

SHA_forsida_top

Rabbfundur miðvikudag & þéttur 1. maí

Rabbfundur miðvikudag & þéttur 1. maí

Fregnir frá hernumdu svæðunum - rabbfundur SHA um Palestínu og Ísrael Miðvikudagskvöldið 28. apríl …

SHA_forsida_top

Morgunkaffi SHA

Morgunkaffi SHA

Morgunkaffi SHA á 1.maí.

SHA_forsida_top

Félagsfundur SHA

Félagsfundur SHA

SHA_forsida_top

1.maí-málsverður í Friðarhúsi

1.maí-málsverður í Friðarhúsi

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss SHA, 1.maí.

SHA_forsida_top

Opinn félagsfundur MFÍK 4. maí í Friðarhúsi kl. 19.00

Opinn félagsfundur MFÍK 4. maí í Friðarhúsi kl. 19.00

Sigrún Sigurðardóttir menningarfræðingur fjallar um líf og reynslu flóttamanna út frá ljósmyndasýningunni heima - heiman …

SHA_forsida_top

Athyglisverð könnun

Athyglisverð könnun

„Margan hefur auður apað“, segir í Sólarljóðunum. Ekki er laust við að þessi spakmæli leiti …

SHA_forsida_top

RV í Friðarhúsi

RV í Friðarhúsi

SHA_forsida_top

Einkasamkvæmi í Friðarhúsi (VS)

Einkasamkvæmi í Friðarhúsi (VS)

SHA_forsida_top

Einkasamkvæmi í Friðarhúsi (DÁ)

Einkasamkvæmi í Friðarhúsi (DÁ)

SHA_forsida_top

Ólýsanleg grimmd

Ólýsanleg grimmd

Upptakan af drápum bandaríska hersins á íröskum borgurum sem birt var um helgina á uppljóstraravefnum …

SHA_forsida_top

Þétt dagskrá framundan

Þétt dagskrá framundan

Það er margt á döfinni hjá hernaðarandstæðingum næstu daga. Dagskráin hefst föstudagskvöldið 26. mars með …