Herkveðjuhátíð á Ránni, Keflavík, laugardaginn 22. apríl kl. 13-17
Vinstri græn á Suðurnesjum standa fyrir herkveðjuhátíð á Ránni í Keflavík nk. laugardag kl. 13-17.
Þetta verður hátíð með léttu yfirbragði en alvarlegum undirtóni. Fjölmörg atriði af ýmsu tagi. Bæði litið um öxl og horft fram á veginn. Þúsund blóm blómstra!
Sambúð hers og þjóðar í hálfa öld – hvers er að minnast?
Fögnuður eða söknuður þegar herinn fer?
Segjum upp herstöðvasamningnum og NATO-samningunum?
Reynum við að finna annan her í staðinn?
Hvernig varnir þurfum við – og gegn hverjum?
Árið 1918 hétum við ævarandi hlutleysi. Á að endurreisa hlutleysið?
Starfslokasamningar? Hvernig gegnur fólki að fá nýtt starf?
Hvernig verður viðskilnaðurinn – hreint land og fagurt land?
Getum við rekið flugvöllinn – og janvel nýtt hann betur?
Jóhann Geirdal, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ: Herinn fer, fögnum nýjum tækifærum
Kristján Pálsson, sagnfræðinemi: Áhrifin voru líka jákvæð
Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur: Orðið varnarlið
Sveinn Rúnar Hauksson. Sögur úr hersetunni
Einar Ólafsson, ritstjóri Friðarvefsins: Um alþjóðlega baráttu gegn herstöðvum.
List og menning m.a.
Rúnar Júlíusson, sá eini og sanni, segir frá kynnum sínum af hernum í máli og tónum.
Sóleyjarkvæði eftir Jóhannes úr Kötlum og tónlist Péturs Pálssonar var frumflutt 1965. Þrír upphaflegu flytjendanna syngja brot úr verkinu.
Hljómsveitir skipaðar ungu fólki af Suðurnesjum og úr Reykjavík: Tokyo Megaplex, Æla, Hellvar, Kapteinn Hafsteinn og Kira Kira.
Kynnir er hinn bráðsnjalli Stefán Pálsson, sagnfræðingur með meiru.
Til sölu:
Veitingar á vegum hússins. Happdrættismiðar, hljómplötur, efni þeirra sem koma fram.
Vinstrihreyfingin grænt framboð á Suðurnesjum
Nánari upplýsingar:
Þorvaldur Örn Árnason, valdurorn@ismennt.is s. 424 6841
Marta Guðrún Jóhannesdóttir, martag@fss.is s. 867 5986