BREYTA

Hlutabréf í Friðarhúsi SHA ehf - einstakt tilboð til 30. apríl

427175377EUHtYW ph Eftir 30. apríl hækkar hlutur í Friðarhúsi SHA ehf úr 10 þúsund krónum í 15 þúsund. Hlutur keyptur fyrir 1. maí mun sem sagt hækka þá um 50%. Þann 19. ágúst 2005 varð langþráður draumur að veruleika þegar Friðarhús SHA ehf festi sér húseignina á Njálsgötu 87, á horni Snorrabrautar. Friðarhús SHA ehf var stofnað 30. mars 2004. Tilgangur þess er að eiga og reka húsnæði fyrir Samtök hernaðarandstæðinga og skapa vettvang fyrir miðstöð friðar- og afvopnunarbaráttu á Íslandi. Stofnfélagar voru 15 með 1,18 milljónir króna, þar af átti SHA 500 þúsund sem þau eiga enn. Í apríl 2009 eru félagar orðnir 269 og innborgað hlutafé 7,4 milljónir króna. Kaupverðið var 9,5 milljónir. Í október 2008 var borgað upp bankalán löngu fyrr en björtustu vonir gerðu ráð fyrir. Nú eru einu skuldir félagsins verðtryggt lán frá SHA, sem stendur í 1,7 milljónum. Byrjað er að greiða það niður. Það sem vantar í þessar upphæðir eru tekjur af mánaðarlegum kvöldverðum, sem við stöndum fyrir, og gerðu okkur kleyft að borga lánið upp. Síðan höfum við fengið nokkra styrki frá velunnurum og ómælda sjálfboðavinnu til að gera húsið í stand. Á aðalfundinum 1. mars 2009 var farið yfir rekstrar og eignastöðu félagsins. Í ljósi þess að félagið stendur mjög vel og eignastaða er langt umfram innborgað hlutafé ákvað fundurinn að eftir 30. apríl 2009 skyldi verð á nýjum hlutum vera fimmtán þúsund krónur í stað tíu þúsund. Þessi hækkun er tæplega vísitöluhækkun frá stofnun félagsins fyrir 5 árum. Hér hefur sumsé verið farin öfug leið miðað við hinn almenna fjármálamarkað. Þeir sem vilja gerast hluthafar eða bæta við sig geta lagt beint inn á reikning nr. 0130-26-2530 í eigu Friðarhúss, kt. 6004042530. Innleggsnótan gildir sem kvittun en koma þarf fram í texta hver leggur inn og hvort þetta sé styrkur eða hlutur. Hver hlutur er tíuþúsund krónur fram að 30. apríl 2009 en framvegis fimmtánþúsund krónur. Frekari upplýsingar veita Sigurður Flosason gjaldkeri SHA, sími 554 0900, Sigríður Gunnarsdóttir gjaldkeri Friðarhúss, sími 552 4346, Elvar Ástráðsson, sími 561 5549, Stefán Pálsson, sími 617 6790.

Færslur

SHA_forsida_top

Ísland-Palestína í Friðarhúsi

Ísland-Palestína í Friðarhúsi

Ísland-Palestína funda í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

Ályktun frá SHA vegna stofnunar rannsóknarnefndar

Ályktun frá SHA vegna stofnunar rannsóknarnefndar

Samtök Hernaðarandstæðinga fagna hugmyndum um að sett verði á fót nefnd til þess að rannsaka …

SHA_forsida_top

Matseðill föstudagsins

Matseðill föstudagsins

Minnt er á fjáröflunarmálsverð Friðarhúss sem haldinn verður föstudagskvöldið 29. janúar. Borðhald hefst kl. …

SHA_forsida_top

Málsverður í Friðarhúsi, föstudag

Málsverður í Friðarhúsi, föstudag

Hinir mánaðarlegu fjáröflunarmálsverðir Friðarhúss hefjast að nýju n.k. föstudagskvöldið, 29. janúar. Boðið verður upp …

SHA_forsida_top

Hvað er á seyði í Íran?

Hvað er á seyði í Íran?

Félagsfundur SHA.

SHA_forsida_top

Hvað er á seyði í Íran? - Miðvikudagsfundur.

Hvað er á seyði í Íran? - Miðvikudagsfundur.

Íran hefur verið í sviðsljósi alþjóðamálanna á undanförnum misserum. Stjórnmálaástandið innanlands er óstöðugt og reglulega …

SHA_forsida_top

Evrópumót í handbolta

Evrópumót í handbolta

Fylgst með leikjum íslenska liðsins í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

Evrópumót í handbolta

Evrópumót í handbolta

Fylgst með leikjum íslenska liðsins í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

Evrópumót í handbolta

Evrópumót í handbolta

Fylgst með leikjum íslenska liðsins í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

Undirbúningsfundur vegna 8.mars

Undirbúningsfundur vegna 8.mars

Undirbúningsfundur vegna 8.mars

SHA_forsida_top

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss.

SHA_forsida_top

Einkasamkvæmi í Friðarhúsi (ÞÓ)

Einkasamkvæmi í Friðarhúsi (ÞÓ)

Friðarhús er í útláni þetta kvöld.

SHA_forsida_top

Miðnefndarfundur SHA

Miðnefndarfundur SHA

Miðnefnd SHA fundar.

SHA_forsida_top

Aðalfundur MFÍK

Aðalfundur MFÍK

Aðalfundur MFÍK er í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

Undirbúningsfundur vegna 8.mars

Undirbúningsfundur vegna 8.mars

Undirbúningsfundur vegna 8.mars