BREYTA

Hryðjuverkastarfsemi í skjóli æfinga

eftir Elías Davíðsson Reykjavík, 14. ágúst 2007 – Fjölmiðlar greindu í dag frá tvíþættum heræfingum, annars vegar æfingu um svonefndar loftvarnir og hins vegar æfingu gegn hryðjuverkum. Það er eftirtektarvert að fjölmiðlar segja lítið um síðari æfinguna, hvað er verið að æfa og hvers vegna. Við æfingar af þessu tagi takast iðulega á tveir hópar, annars vegar „óvinurinn“ og hins vegar „verndararnir“. Vegna æfinga gegn hryðjuverkum þarf að kenna öðrum hópnum hvernig á að standa að hryðjuverkum. Hluti af æfingunni er því að kenna mönnum – þ.m.t. sérsveitarmönnum – hvernig sé best að framkvæma hryðjuverk. Þeir verða því einu Íslendingar með fagþekkingu um undirbúning hryðjuverka. Rétt væri að almenningur merki hjá sér nöfn þessara manna, til vonar og vara. Fáir vita, hins vegar, að stærstu hryðjuverkin nútímans hafa verið unnin í skjóli æfinga gegn hryðjujverkum! Hryðjuverkin 11. september 2001 voru unnin nákvæmlega á sama tíma og margvíslegar æfingar á vegum bandaríska hersins voru haldnar, m.a. æfing gegn flugvélaránum og æfing gegn flugvélahrapi á byggingu. Herinn lét m.a. beina rafmerkjum um ‘rændar flugvélar’ að hinu borgaralega ratsjárkerfi og villti þannig fyrir flugumferðarstjórum sem héldu í fyrstu að merkin á ratsjánum væru hluti af heræfingum en ekki raunverulegar flugvélar. Þetta leiddi m.a. til þess að flugherinn var svifaseinn og brást ekki í tæka tíð við hinum „raunverulegu“ flugránum. Æfingar af þessu tagi gera þátttakendum einnig kleift að taka þátt í hryðjuverkunum óaðvitandi: Þeir halda að séu aðeins að taka þátt í leiknum hryðjuverkum. Svipað gerðist þegar sprengjuárásirnar voru gerðar í neðanjarðarbrautunum í London þann 7. júlí 2005. Á nákvæmlega sama tíma að morgni þessa dags stjórnaði öryggisfyrirtækið Visor Consultants æfingu á vegum ótilgreinds fyrirtækisins gegn hryðjuverkaárás sem átti að eiga sér stað einmitt á sömu neðanjarðarstöðvum og raunverulegu árásirnar gerðust. Forstjóri Visor Consultants, Peter Power, sagði útvarpsstöðinni BBC-4 frá þessu síðla dagsins og kvaðst undrandi á þessari „tilviljun“. Hann neitaði hins vegar að greina frá nafni fyrirtækisins sem hann vann fyrir. Eftir fall Berlínarmúrsins missti NATO tilverugrundvöll sinn. Ráðamenn NATO hafa því ákveðið að smíða sér nýjan óvin. Óvinurinn var fundinn í gervi alþjóðlegs samsæris múslimskra hryðjuverkahópa. Kostir þessa óvinar eru að hann er ósýnilegur og getur falist í hverju landi meðal múslima. Hann getur skotið upp kolli hvar sem er og hvenær sem er, með eldhúshnífi eða kjarnorkusprengju innan klæða, eins og sjálfur djöfullinn. Óvinurinn dulbýr sig sem kennari, læknir eða flugmaður. Slíkur óvinur gerir valdhöfum því kleift að réttlæta aukið eftirlit með borgurunum – því óvinurinn getur verið alls staðar – og þjappa saman vesturlandaþjóðum gegn fjarlægum þjóðum með svipuðum hætti sem Adolf Hitler gerði gagnvart gyðingum. Það er þó eitt stórt vandamál: Alltof fáir múslímar fást til að stunda hryðjuverk á Vesturlöndum. Í fyrra t.d. dóu um 20.000 manns í almennum morðum í Evrópu. Af þeim dóu nákvæmlega núll manns í hryðjuverkum. Hvernig á NATO, hvernig eiga stjórnvöld Vesturlanda, að viðhalda hryðjuverkaógninni að almenningi ef engin hryðjuverk eru unnin? Því er fljótsvarað. Með því að tæla múslíma til að undirbúa hryðjuverk, eða ef það tekst ekki, að sviðsetja „múslímsk“ hryðjuverk. Gagnsemi hryðjuverkaæfinga er því tvíþætt: Í fyrsta lagi er verið að kenna sérsveitarmönnum verklag hryðjuverka; í öðru lagi að skapa grundvöll fyrir sviðsett hryðjuverk. Þeir sem vilja fræðast meira um þessi mál er bent á: www.aldeilis.net Elías Davíðsson

Færslur

SHA_forsida_top

Bjartsýnisverðlaun Nóbels

Bjartsýnisverðlaun Nóbels

Átti Barack Obama skilin Friðarverðlaunin? Eftirfarandi grein Hörpu Stefánsdóttur birtist í Smugunni 10. október …

SHA_forsida_top

Einkasamkvæmi í Friðarhúsi

Einkasamkvæmi í Friðarhúsi

Friðarhús er í láni þetta kvöld til félagsins Vantrúar.

SHA_forsida_top

Silfurmaður í Friðarhúsi

Silfurmaður í Friðarhúsi

Bandaríski rithöfundurinn Webster Tarpley var gestur í sjónvarpsþættinum Silfri Egils sunnudaginn 26. september, þar sem …

SHA_forsida_top

Dagur án ofbeldis – 2. október

Dagur án ofbeldis – 2. október

Heimsganga í þágu friðar og tilveru án ofbeldis er alþjóðlegt verkefni sem beinist að …

SHA_forsida_top

Söguhópur SHA fundar

Söguhópur SHA fundar

Fundur í Söguhópi SHA.

SHA_forsida_top

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss

Málsverður í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

Rauður vettvangur, félagsfundur

Rauður vettvangur, félagsfundur

Félagsfundur RV í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

Fyrsti málsverður haustsins

Fyrsti málsverður haustsins

Komið er að fyrsta málsverði haustsins í Friðarhúsi. Auk þess að vera góð fjáröflun fyrir …

SHA_forsida_top

Heimsganga í þágu friðar og tilveru án ofbeldis 2. okt. 2009 til 2. jan. 2010

Heimsganga í þágu friðar og tilveru án ofbeldis 2. okt. 2009 til 2. jan. 2010

2. október næstkomandi hefst á Nýja Sjálandi heimsganga í þágu friðar og tilveru án ofbeldis. …

SHA_forsida_top

Ástandið á Sri Lanka

Ástandið á Sri Lanka

Borgarastríð hefur geysað á Sri Lanka nær samfellt í aldarfjórðung og komust átökin mjög í …

SHA_forsida_top

Mótmælandi Íslands, minningarsýning

Mótmælandi Íslands, minningarsýning

Sem kunnugt er lést Helgi Hóseasson á dögunum, en hann var þjóðkunnur baráttumaður fyrir friði …

SHA_forsida_top

Miðnefndarfundur SHA

Miðnefndarfundur SHA

Miðnefnd SHA fundar.

SHA_forsida_top

Stríðið á Sri Lanka

Stríðið á Sri Lanka

Kristján Guðmundsson fjallar um átökin á Sri Lanka.

SHA_forsida_top

Ritstjórnarfundur Dagfara

Ritstjórnarfundur Dagfara

Ritstjórn Dagfara fundar

SHA_forsida_top

Mótmælandi Íslands

Mótmælandi Íslands

Heimildarmynd um Helga Hóseasson í boði SHA og Vantrúar.