BREYTA

Hvað er á seyði í Tyrklandi? - Bakgrunnur átakanna skýrður

Fréttir hafa borist af stórfelldum mótmælum í Tyrklandi og vangaveltur verið um hvort stjórnarskipta sé að vænta í þessu fjölmenna Nató-ríki. Atburðirnir í Tyrklandi eiga sér ýmsar ástæður og tengjast meðal annars borgarastríðinu í Sýrlandi sem staðið hefur í á annað ár. Samtök hernaðarandstæðinga hafa á liðnum misserum efnt til fræðslufunda um átakasvæði í heiminum. Miðvikudagskvöldið 12. júní mun Sverrir Jakobsson sagnfræðingur og fv. formaður SHA fjalla um sögulegan bakgrunn atburðanna í Tyrklandi og velta vöngum yfir því hvað gerast kunni. Almennar umræður. Fundurinn verður haldinn í Friðarhúsi og hefst kl. 20. Allir velkomnir.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …