BREYTA

Hvenær hætta þeir að drepa?

Eftirfarandi grein Guðmundar R. Jóhannssonar birtist á vefritinu ogmundur.is 19. ágúst 2007 Rússarnir eru komnir aftur. Með sælubrosi hallaði ég mér aftur í hægindastólnum, sem fljótlega þarf að endurnýja til að halda við hagvextinum. Loksins, loksins voru þeir komnir, ég sem hélt að gamla Grýla væri dauð, gafst hún upp á sprengjunum. En, nei enn leyndist líf. Og hvað þetta var á góðum tíma. Einmitt þegar Norðurvíkingar voru að æfa sig. Ætla líklega í fæting við Suðurvíkinga. Utanríkisráðherra var mög ábúðarmikil í fjölmiðlum. Nú kom í ljós hvílík þörf okkur var á traustum vörnum. Og forsætisráðherra, sem af einhverjum ástæðum hafði tekið á móti víkingunum þótt ég hefði haldið að það væri ekki í hans verkahring, brosti hringinn. Þetta sögðum við altaf, ógnin er innan seilingar. Æðibunugangurinn sem varð þegar Kaninn flaug á burt frá okkur átti rétt á sér. Reyndar skilst mér að Kaninn ætli að vernda okkur fjórum sinnum á ári, en þess á milli gætu Norðmenn gert eitthvað, Kanadamenn væru eflaust til í slaginn, Þjóðverjar eru altaf góðir í stríði og fleiri og fleiri. Nató sjálfur „i sin helhet“ var svo tilbúinn að passa okkur svo Geirarnir okkar gætu sofnað í fullu öryggi með nýjasta vélbyssuleikfangið í fanginu og Sollurnar með stóru hermannadúkkuna við hlið sér, nákvæmlega uppábúna eins og alvöru gæjar í Írak, sem sumir voru svo leiðir yfir að þyrftu að vera þar. Sem sagt, allt eins og áður var og við getum lifað áfram í fullkomnu öryggi. Reyndar var Steingrímur eitthvað að tuða um það að væri fínt að efnahagur Rússa væri orðinn svo góður að þeir ættu fyrir eldsneyti á gömlu rellurnar sínar. En hann er nú líka alltaf fúll á móti. Samt, ég sem sannur kapitalisti sem horfi með evrumerki í augunum á útrásina og á fínu gaurana sem eiga vel fyrir salti í grautinn og gætu líka stráð salti á síðasta þorskinn á pönnunni, ég verð að gleðjast, kannski er að renna upp ný tíð í Rússíá, það verði hætt að stinga mönnum sem þjéna sæmilega í steininn, heldur fái þeir að njóta hæfileika sinna í óheftu frelsi. Að þeir eigi fyrir olíu hlýtur að þýða meiri möguleika til að selja þeim eitthvað, t.d. gömlu kjarnasprengjurnar sem eru að úreldast í vopnabúrum verndara okkar, ásamt öðrum smábombum og einni og einni byssu sem ekki hefur komist í hendur skólabarna vestur þar. Um daginn voru þeir að ná einhverjum gíslum út úr Líbýu. Fengu ráðamenn þar í staðinn gommu af aurum. Aurum til að bæta heilbrigðisþjónustu, menntun og almenn lífskjör. Eða hvað? Það þjónar víst ekki hagvextinum. Stærsti hluti var skilyrtur til vopnakaupa, kannski til að hægt væri að ná fleiri gíslum og fá svo meiri peninga? Afgangurinn gat farið í að kaupa nauðsynjar í vestrinu, vonandi á viðunandi verði með lækkuðum virðisaukaskatti. Nauðsynjavörur eins og morgunkorn, gallabuxur af góðum ættum, hnetusmjör eða annað sem engin menningarþjóð getur án verið. Altaf er slæmt að missa nöldrið sitt og fótunum var næstum kippt undan vestræna heiminum þegar í ljós kom að rússneski björninn var aðeins pappatígrísdýr, ekki ólíkt og pappalöggurnar hennar Sólveigar dóms. um árið. En sem betur fór sá heimurinn ljósið, það voru hryðjuverkamenn allsstaðar. Jón og Gunna í næsta húsi hér í Grafarvoginum gátu verið stórhættuleg. Dytti þeim í hug að skreppa til útlandsins skyldu þau í gegnum vopnaleit, öryggisgæslu og jafnvel koma nakin fram. Leit sem gat tekið lengri tíma en flugferðin sjálf. Dytti þeim í hug að taka með hálfslítra kók, var ekki sökum að spyrja, guðadrykkurinn sjálfur í því magni var stórhættulegur. Ég veit um konu sem fullyrðir að Osama bin Laden búi í kjallara Hvíta hússins og njóti þar fyllstu verndar. Og því ekki, ef þær fregnir bærust út að hann væri allur eða hefði jafnvel aldrei verið til yrði þaði meiri háttar áfall. Sjálf meginstoð hryðjuverkaógnarinnar. Það má ekki gerast, nema að Putin komi í staðinn. Hvað um heimsmynd okkar, alþjóðavæðinguna, frjálsu og óháðu viðskiptin, ferða „frelsið“, skilning milli kynþátta og trúfélaga. Hvað með allt þetta? Ég þekki mann sem spilar brids á netinu, oft Súdanbúa sem kannski var að berja á löndum sínum í Darfur, Íraka sem kannski skaut nokkra Bandaríkjamenn í morgun og ef vantar fjórða mann var hægt að ná í Kana sem kannski var að drepa nágranna sinn af því að hann steig óvart inná lóðina hans. Eða var Súdaninn að koma heim af akrinum með konu sinni, var Írakinn áðan að reyna að svæfa börnin sín tvö sem voru andvaka vegna hvins byssukúlnanna. Var Kaninn truflaður við að laga pallbílinn með nágranna sínum? Í hvaða heimi viljum við lifa? Hvenær kemur að því að fólk hefur fengið nóg? Hvenær hætta Geirarnir og Sollurnar og við hin að leggja eyrun við áróðri vopnasalanna? Sex ára eða svo man ég að hafa setið í fangi fóstru minnar eftir að hafa heyrt í fréttum um bardaga og dráp úti í hinum stóra heimi. Ég hágrét og spurði í bjargarleysi barnsins: Hvernær hætta þeir að drepa? Rúmum sextíu árum síðar get ég ennþá grátið. Guðmundur R. Jóhannsson

Færslur

SHA_forsida_top

Miðausturlönd - eyðilegging samkvæmt áætlun

Miðausturlönd - eyðilegging samkvæmt áætlun

Þórarinn Hjartarson á Akureyri, félagsmaður í SHA, sendi Friðarvefnum þessa samantekt á stríðsrekstrinum í Miðausturlöndum. …

SHA_forsida_top

Októbermálsverður, föstudagskvöld

Októbermálsverður, föstudagskvöld

Föstudagskvöldið 31. október n.k. verður fjáröflunarmálsverður Friðarhúss haldinn. Gestakokkur kvöldsins er friðardúfan, Mosfellingurinn og spurningakeppnisforkólfurinn …

SHA_forsida_top

Ameríka hér og þar

Ameríka hér og þar

Fimmtudagskvöldið 23. október munu MFÍK og SHA standa sameiginlega fyrir fundi í Friðarhúsi. Sólveig Anna …

SHA_forsida_top

Hervædd viðbrögð við ebólu

Hervædd viðbrögð við ebólu

Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að um þessar mundir geysar versti ebólufaraldur sögunnar …

SHA_forsida_top

Dirty Wars á mánudagskvöld

Dirty Wars á mánudagskvöld

Heimildarmyndin Dirty Wars hefur vakið verðskuldaða athygli, en í henni er athyglinni beint að stríðsrekstri …

SHA_forsida_top

Haustmálsverður friðarsinnans, 26. sept.

Haustmálsverður friðarsinnans, 26. sept.

Fyrsti fjáröflunarmálsverður haustmisseris verður haldinn í Friðarhúsi, Njálsgötu 87, föstudagskvöldið 26. september. Jón Bjarni, Gísli …

SHA_forsida_top

Ályktun vegna fjárlagafrumvarps

Ályktun vegna fjárlagafrumvarps

Samtök hernaðarandstæðinga lýsa vonbrigðum sínum með fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2015. Sem fyrr er ætlunin …

SHA_forsida_top

Hiroshima og Nagasaki og nokkrar staðreyndir

Hiroshima og Nagasaki og nokkrar staðreyndir

Eftirfarandi grein Gylfa Páls Hersis birtist fyrst í Fréttablaðinu fimmtudaginn 11. september, eftir að hafa …

SHA_forsida_top

Liðsafnaður í ranga átt – á ný.

Liðsafnaður í ranga átt – á ný.

Þórarinn Hjartarson á Akureyri, félagsmaður í SHA, sendi Friðarvefnum þessa sögulegu samantekt á málefnum Úkraínu. …

SHA_forsida_top

Skiltasmiðja á menningarnótt

Skiltasmiðja á menningarnótt

Samtök hernaðarandstæðinga láta til sín taka á menningarnótt, laugardaginn 23. ágúst og bjóða upp á …

SHA_forsida_top

Spennandi uppákomur Róttæka sumarháskólans

Spennandi uppákomur Róttæka sumarháskólans

Róttæki sumarháskólinn hefur rækilega fest sig í sessi. Nokkur undanfarin ár hefur hann staðið fyrir …

SHA_forsida_top

Tortíming farþegaþotu: hryðjuverk undir fölsku flaggi og stríðsundirbúningur

Tortíming farþegaþotu: hryðjuverk undir fölsku flaggi og stríðsundirbúningur

Þórarinn Hjartarson á Akureyri sendi Friðarvefnum meðfylgjandi grein til birtingar: Michael Bociurkiw var annar af …

SHA_forsida_top

Myndin af Anders Fogh

Myndin af Anders Fogh

Birgitta Bergþóru- Jónsdóttir þingmaður Pírata vakti í dag athygli á sérkennilegri mynd af Anders Fogh …

SHA_forsida_top

Ræða við Minjasafnstjörnina á Akureyri

Ræða við Minjasafnstjörnina á Akureyri

Ragnheiður Skúladóttir leikstjóri flutti ávarp á kertafleytingu á Akureyri þann 6. ágúst sl. Kæra samferðafólk …

SHA_forsida_top

Ávarp á kertafleytingu

Ávarp á kertafleytingu

Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur flutti meðfylgjandi ávarp á kertafleytingunni á Tjörninni þann 6. ágúst. Þegar …