BREYTA

Hver er Chelsea Manning: fundur á þriðjudag

Eitt síðasta embættisverk Obama Bandaríkjaforseta var að stytta fangelsisdóminn yfir uppljóstraranum Chelsea Manning. Á sínum tíma fletti Manning ofan af víðtækum stríðsglæpum Bandaríkjastjórnar í einhverjum mikilvægasta gagnaleka síðustu ára. Hver er Chelsea Manning og hvaða máli skiptu upplýsingarnar sem hún kom á framfæri? Samtök hernaðarandstæðinga boða til fundar um þetta málefni þriðjudagskvöldið 31. janúar kl. 20 í Friðarhúsi. Birgitta Jónsdóttir þingmaður mætir og rekur þessa mikilvægu sögu. Umræður á eftir.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …