BREYTA

Þingmenn deila um varnarmál

Eftirfarandi grein Árna Páls Árnasonar þingmanns Samfylkingarinnar og varaformanns utanríkismálanefndar Alþingis birtist í Morgunblaðinu 23. ágúst. Fyrir neðan hana má lesa svargrein Árna Þórs Sigurðssonar þingmaður VG af bloggsíðu hans sama dag.
Að styðja Hamas en fordæma Norðmenn eftir Árna Pál Árnason Í síðustu viku stóð yfir heræfing hér á landi. Slíkar æfingar eru nauðsynlegar til að æfa viðbúnað við hættuástandi. Í æfingunni nú var áberandi þáttur Norðmanna og Dana. Sá þáttur er bein afleiðing aukins samstarfs okkar við þessa næstu nágranna okkar í öryggis- og varnarmálum, í kjölfar þess að bandarískt varnarlið hvarf frá Keflavík. Það vakti því nokkra athygli að sjá formann, þingflokksformann og aðra þingmenn Vinstri grænna taka sér mótmælastöðu fyrir utan sendiráð Norðmanna og Dana hér á landi. Systurflokkur VG er í ríkisstjórn í Noregi og hefur því yfir herliði því sem hér var við æfingar að segja. Að sögn formanns Vinstri grænna var ástæða mótmælanna fyrst og fremst andstaða VG gegn ofbeldi. Er sjálfsvörn sama og árás? Markmið heræfinganna var að æfa viðbrögð við hættuástandi. Í þetta sinn voru æfð viðbrögð við hryðjuverkum en áður hafa m.a. verið æfð viðbrögð við stórfelldum náttúruhamförum. Það er ekki alveg ljóst í mínum huga hvort óbeit VG á ofbeldi er slík að þeir geti ekki hugsað sér að vopnavaldi sé beitt til að frelsa gísla úr haldi, svo dæmi sé tekið. Má sérsveit lögreglunnar þá ekki beita vopnum til að fást við vopnað fólk? Má lögreglan þá ekki beita valdi til að handjárna menn? Hér voru einungis æfð viðbrögð við hryðjuverkum á borð við lausn á gíslatöku. Af hverju má ekki frelsa gísla með vopnavaldi? Gerir VG engan greinarmun á valdbeitingu opinberra aðila til að halda uppi lögum og reglu og ofbeldisárás? Treystir Steingrímur ekki flokkssystkinum sínum í Noregi til að hafa lýðræðislega stjórn á norskum herafla? Þessi djúpstæða óbeit VG á ofbeldi vekur ýmsar fleiri spurningar. Forysta VG hafði stór orð í garð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra í sumar, í kjölfar þeirrar ákvörðunar hennar að hitta ekki að máli fulltrúa Hamas í heimsókn sinni til Palestínu. Ástæðan var að heimsókn utanríkisráðherra var farin rétt í kjölfar vopnaðs valdaráns Hamas á Gazasvæðinu og fundur utanríkisráðherra með fulltrúum þeirra á þessum tímapunkti hefði falið í sér óbeina viðurkenningu Íslands á beitingu ofbeldis af þeirra hálfu. Í ljósi þessa getur maður því ekki annað en spurt hvort óbeit Vinstri grænna á ofbeldi sé bara til innanlandsbrúks. Ný tækifæri – ætlar VG að sitja hjá? Við viljum flest berjast gegn ofbeldi en við hljótum einnig að áskilja okkur rétt til þess að halda uppi lögum og reglu og verja rétt okkar til stjórnarfarslegs sjálfstæðis og yfirráða yfir íslensku landsvæði. Með brottför varnarliðsins frá Keflavík opnuðust ný tækifæri fyrir okkur sem þjóð til að móta öryggismálastefnu út frá íslenskum hagsmunum í samstarfi við okkar nánustu bandamenn. Í því efni er mikilvægast að við tryggjum að fylgst sé með umferð yfir landinu og að við eigum aðgang að aðstoð frá nánustu bandamönnum okkar til að bregðast við óvæntum aðstæðum á borð við stórfelldar náttúrhamfarir, umhverfisslys eða hryðjuverk. Það er sérstaklega æskilegt að efla samstarf við Norðmenn og Dani í þessum efnum í stað þess að byggja öryggisviðbúnað okkar alfarið á samstarfi við Bandaríkjamenn, sem oft eiga annars konar hagsmuni að verja á alþjóðavísu en við. Núna gefst einstakt tækifæri til nýsköpunar í stefnumótun um öryggis- og varnarmál. Það er áhyggjuefni ef forysta VG ætlar að dæma sig úr leik í þeirri umræðu og halda sig á gamalkunnum slóðum í heimi mótmælaslagsmála og innantómra orðaleppa. Flokkur sem vill láta taka sig alvarlega verður að vera til viðræðu um öryggis- og varnarmál á vitrænum forsendum. Það hefur systurflokki VG í Noregi tekist ágætlega. Hvað dvelur Steingrím?
Áframhaldandi hernaðarstefna á „vitrænum forsendum“ eftir Árna Þór Sigurðsson Helsti talsmaður Samfylkingarinnar í utanríkismálum, varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis, ritar grein í Morgunblaðið í dag þar sem hann útskýrir stefnubreytingu flokks síns í utanríkismálum. Þar má skilja, að nú þegar flokkurinn er kominn í ríkisstjórn verði að taka á utanríkis- og varnarmálum á „vitrænum forsendum“. Og hverjar eru hinar „vitrænu forsendur“? Jú, það er óbreytt hernaðarstefna, áframhaldandi stuðningur íslenskra stjórnvalda við innrásarstríð í Írak, hernaðarbrölt í Afganistan og þannig má vafalaust áfram telja. Hefur hann uppi allmörg orð um það að friðarstefna Vinstri grænna sé ekki háð á „vitrænum forsendum“ - og hvað er þá orðið að málflutningi og baráttu margra góðra hernaðarandstæðinga og friðarsinna sem störfuðu í Alþýðubandalaginu og Kvennalistanum á sinni tíð? Hvert hafa örlögin leitt það ágæta fólk í sameiningunni við Alþýðuflokkinn? Blasir ekki við að það er gamla heimsvaldastefnan, hernaðarhyggjan og undirgefni við Bandaríkjastjórn, sem var aðalsmerki Alþýðuflokksins, sem hefur orðið ofan á innan Samfylkingarinnar? Og þá stefnu er talsmaðurinn að verja í Morgunblaðsgreininni. Sú stefna sem flokkurinn fylgir nú, var að vísu ekki svo einbeitt og augljós í aðdraganda kosninga og meðan flokkurinn var í stjórnarandstöðu. Háværar kröfur forystumanna flokksins um uppgjör vegna Írak eru að engu orðnar og hafa dáið drottni sínum. Það er hins vegar vita gagnslaus málsvörn hjá nafna mínum að ætla að útskýra stefnubreytingu Samfylkingarinnar með því að draga fram Norðmenn og Dani sem skálkaskjól. Það hefur engin stefnubreyting orðið hjá íslenskum stjórnvöldum við ríkisstjórnarskiptin, eins og kjósendum var lofað að yrði ef Samfylkingin kæmist í ríkisstjórn, og það leyfum við okkur í VG að gagnrýna. Stjórnarflokkur verður að þola það að vera minntur á kosningaloforðin og þegar þau eru að engu höfð er ekki við neinn að sakast nema hann sjálfan. En sannleikanum verður hver sárreiðastur, eins og sést glöggt á málsvörn varaformanns utanríkismálanefndar í Morgunblaðinu í dag.

Færslur

SHA_forsida_top

Friðarhús - Njálsgötu 87

Friðarhús - Njálsgötu 87

23. apríl 2009 Þann 19. ágúst 2005 varð langþráður draumur að veruleika þegar Friðarhús …

SHA_forsida_top

Fundað um fjármál

Fundað um fjármál

Hið nýja húsnæði SHA, Friðarhúsið á horni Snorrabrautar og Njálsgötu, er óðum að taka á …

SHA_forsida_top

Fimmtudagsfundur um stefnuskrá

Fimmtudagsfundur um stefnuskrá

Stefnuskrá Samtaka herstöðvaandstæðinga var samþykkt á landsráðstefnu síðla árs 1995. Stefnt er að því að …

SHA_forsida_top

Stefnuskrá SHA

Stefnuskrá SHA

Samþykkt á Landsráðstefnu 5. nóv. 2005 Samtök hernaðarandstæðinga berjast fyrir því að alþjóðleg deilumál verði …

SHA_forsida_top

Kvennabarátta fyrir jafnrétti, jöfnuði og betra mannlífi

Kvennabarátta fyrir jafnrétti, jöfnuði og betra mannlífi

Þessi grein Maríu S. Gunnarsdóttur, formanns MFÍK, birtist í Morgunblaðinu mánudaginn 24. okt. 2005. BARÁTTA …

SHA_forsida_top

Ályktun frá félagsfundi SHA

Ályktun frá félagsfundi SHA

Almennur félagsfundur Samtaka herstöðvaandstæðinga, haldinn fimmtudaginn 20. október, hvetur til þess að slitið verði á …

SHA_forsida_top

Friðarhorfur í Búrúndí

Friðarhorfur í Búrúndí

Það virðist vera hægt að lesa um endalaust af hörmungum í fjölmiðlum heimsins. Þjóðarmorð hér …

SHA_forsida_top

Geysifjölmenn mótmæli í Washington

Geysifjölmenn mótmæli í Washington

Um helgina efndu andstæðingar Íraksstríðsins í Bandaríkjunum til mótmælaaðgerða í Washington. Aðgerðirnar voru geysifjölmennar. Að …

SHA_forsida_top

BNA geymdu kjarnorkuvopn í Suður-Kóreu

BNA geymdu kjarnorkuvopn í Suður-Kóreu

Kjarnorkuvopn á Kóreuskaganum hafa verið talsvert til umræðu upp á síðkastið í tengslum við torræðar …

SHA_forsida_top

Mótmælaaðgerðir gegn Íraksstríðinu 24. september

Mótmælaaðgerðir gegn Íraksstríðinu 24. september

Í Bandaríkjunum er nú í fullum gangi undirbúningur að miklum mótmælaaðgerðum gegn Íraksstríðinu helgina 24.-25. …

SHA_forsida_top

Herstöðin á Diego Garcia og mannréttindabrot Breta

Herstöðin á Diego Garcia og mannréttindabrot Breta

Úti í miðju Indlandshafi, um það bil 1600 km suður af Indlandi, er lítil kóraleyja, …

SHA_forsida_top

Herstöðin á Diego Garcia og mannréttindabrot Breta

Herstöðin á Diego Garcia og mannréttindabrot Breta

Úti í miðju Indlandshafi, um það bil 1600 km suður af Indlandi, er lítil kóraleyja, …

SHA_forsida_top

Blómin í ánni

Blómin í ánni

Ávarp flutt í tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur þann 9.ágúst 2005 á fundi friðarhreyfinga til minningar um …

SHA_forsida_top

Ávarp við kertafleytingu á Reykjavíkurtjörn 9.ágúst 2005

Ávarp við kertafleytingu á Reykjavíkurtjörn 9.ágúst 2005

Ágætu friðarsinnar. Við erum samankomin hér við Tjörnina á þessu ágústkvöldi til að minnast fórnarlamba …

SHA_forsida_top

60 ár frá kjarnorkuárásum á Hiroshima og Nagasaki – minningarfundur í Ráðhúsinu

60 ár frá kjarnorkuárásum á Hiroshima og Nagasaki – minningarfundur í Ráðhúsinu

Þriðjudaginn 9. ágúst minnast íslenskar friðarhreyfingar þess að 60 ár eru liðin frá því að …