BREYTA

Kertafleyting í Reykjavík & Akureyri 9. ágúst

Árið 1985 var kertum í fyrsta sinn fleytt hér á landi í minningu fórnarlamba kjarnorkuárásanna á Hírósíma og Nagasaki. Í ár verður kertum fleytt þriðjudagskvöldið 9. ágúst kl. 22:30 í Reykjavík við suðvesturbakka Tjarnarinnar (við Skothúsveg). Hildur Knútsdottir rithöfundur flytur ávarp en Hilmar Guðjónsson leikari verður fundarstjóri.  Flotkerti eru seld við Tjörnina.   Aðgerðin er á vegum Samstarfshóps friðarhreyfinga, sem er samstarfsverkefni ýmissa friðarsamtaka og -hópa. Á Akureyri verður keyrtafleytingin að vanda við Minjasafnstjörnin en hefst kl. 22:00. Ræðumaður nyrðra verður Jóhann Ásmundsson.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …