BREYTA

Kertafleytingar: Reykjavík 9. ágúst & Akureyri 11. ágúst

Hin árlega kertafleyting í Reykjavík verður haldin þriðjudaginn 9.ágúst. Verður safnast saman við suðvesturbakka Tjarnarinnar (við Skothúsveg) klukkan 22:30. Þar mun borgarstjórinn í Reykjavík Jón Gnarr flytja ávarp og kveðjur frá borgarstjóranum í Nagasakí Tomihisa Taue. Kristján Hans Óskarsson leikari flytur ljóðið Klukkurnar í Nagasakí. Fundarstjóri verður Auður Lilja Erlingsdóttir framkvæmdastýra. Að venju verða flotkerti og friðarmerki seld á staðnum. * * * Á Akureyri verður kertafleyting fimmtudagskvöldið 11. ágúst. kl. 22:30 við Minjasafnstjörnina. Kertum hefur verið fleytt á Akureyri frá 1998. Ávarpið að þessu sinni flytur Áki Sebastian Frostason.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …