BREYTA

Kræsingar í Friðarhúsi

KokkurHinar mánaðrlegu fjáröflunarmáltíðir Friðarhúss hefjast á ný eftir sumarið fös. 29. september. Borðhald hefst kl. 19 og boðið verður upp á stutt skemmtiatriði. Þrátt fyrir þenslu og óðaverðbólgu í samfélaginu kostar maturinn sem fyrr litlar 1.000 krónur. Matseðillinn er á þessa leið: Grænmetissúpa indverskur kjúklingapottréttur hrísgrjón jógúrt raitha naanbrauð Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. * * * Enn er minnt á Suðurnesjaferð SHA, sunnudaginn 1. okt. Um er að ræða rútuferð frá Friðarhúsi kl. 12. Farið verður á slóðir herstöðvarinnar undir leiðsögn. Æskilegt er að sem flestir skrá sig með því að senda tölvupóst á sha@fridur.is til að auðvelda skipulagningu.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …