BREYTA

Listin að selja stríð

(Þessi grein var send Fréttablaðinu 24. ágúst, þremur dögum eftir efnavopnaárásina í Damaskus, en blaðið hefur ekki áhuga. Efnið hefur þó ekki úrelst á nokkurn hátt.)

Markaðssetning stríðs er háþróuð list innan heimsvaldasinnaðra herfræða. Vesturveldin hafa í tvö ár reynt að skapa sér grundvöll til hernaðaríhlutunar í Sýrland. Í fyrra drógu Bandaríkin, Bretar og Frakkar upp rautt strik: Ef annar hvor aðilinn (!) í borgarastríðinu beitir efnavopnum er það tilefni til íhlutunar „alþjóðasamfélagsins“.  Uppreisnaröflin hafa því allt að vinna af beitingu efnavopna en Sýrlandsstjórn öllu að tapa svo það er óhugsandi að hún standi að eiturgasárásinni í úthverfi Damaskus, framan við nefið á eftirlitsnefnd SÞ. Vestræn hernaðarstefna á sér blóðuga sögu og árásarhneigðin vex nú í takt við dýpkandi kreppu. En almenningur Vesturlanda er tregari til að styðja stríðsrekstur en í nýlendusókn 19. aldar. Altént verður að selja stríðin undir öðrum vörumerkjum en þá. Ekki hægt að segja hið sanna: að stríðin snúist um að viðhalda arðránskerfinu mikla, að þau snúist um olíu, olíuflutninga, auðlindir og samkeppni um markaði og áhrifasvæði. Ekki dugir lengur að segja að þau snúist um siðun og kristnun óæðri kynstofna – né baráttuna gegn hinum voðalega heimskommúnisma. Stríðin verður að markaðssetja af klókindum. Ný vörumerki þeirra eru: uppræting gjöreyðingarvopna, uppræting harðstjóra (nema þeir séu vestrænt sinnaðir!), mannúð, kvenfrelsi, stríð gegn hryðjuverkum…

Þegar ráðast skal á land er vestræn pressa látin auglýsa vörumerki stríðsins. Laura Bush forsetafrú hélt sína fyrstu útvarpsræðu rétt eftir innrásina í Afganistan 2001. Erindið var að hvetja til alþjóðlegrar fordæmingar á  kúgun afganskra kvenna. Og sendiherra Bushstjórnarinnar á Íslandi fagnaði því sérstaklega að fá hér femínískan utanríkisráðherra, Ingibjörgu Sólrúnu, til að tala máli stríðsins hér heima og erlendis (sjá Grapevine nr. 12 2013).

Væntanleg íhlutun í Sýrland – eins stríðið í Írak og umsátrið um Íran – er sögð snúast um „upprætingu gjöreyðingavopna“. Í Líbíu, eins og í Júgóslavíu var auglýst „mannúðarinnrás“ gegn skrímsli. Þá var það verkefni vestrænnar pressu að gera Milosevic og Gaddafi að nægilega miklum skrímslum svo hægt yrði að siga NATO á þá. Enn fremur var frjálsum félagasamtökum beitt hugvitsamlega fyrir stríðsvagninn. Í aðdraganda Líbíustríðs var bænaskrá um hernaðaríhlutun undirrituð af 70 „mannréttindasamtökum“ send Ban-ki Moon og átti hún mikinn þátt í að SÞ samþykkti loftferðabannið á Líbíu.

Jafnvel heilaþvottur vestrænu fréttastöðvanna nægir ekki til að æsa almenning til að styðja stríð.  Hið svokallaða „stríð gegn hryðjuverkum“, allt frá 11. september til eiturgasárasarinnar við Damaskus einkennist af röð atburða sviðssettum af vestrænum leyniþjónustum, atburðum sem skapa mynd af stöðugri ytri ógn sem réttlætir hernaðinn út á við og lögregluríkið heima fyrir. Eitt dæmi: Núna í ágúst lét USA um tíma loka 19 sendiráðum og ræðismannsskrifstofum í Miðausturlöndum til að viðhalda ímyndinni af hryðjuverkaógn, og vísaði til símasamtals tveggja Al Kída-manna í Jemen.

Í þessu mikla leikverki gegna hópar íslamista lykilhlutverki. Það er í góðu samræmi við allan þennan djöflapóker að virkja  yfirlýsta andstæðinga Vesturlanda fyrir hagsmuni Vesturlanda. Al Kaída – verkfæri og sköpunarverk CIA – gegnir lykilhlutverki í þessu tilliti. Hlutverk vígahópsins hefur einkum verið að gefa Bandaríkjunum og NATO-ríkjum tilefni til íhlutana á útvöldum svæðum (sbr. Afganistan, Jemen, Sómalíu, Malí…). Stundum beita heimsvaldasinnar hins vegar „trúardeilutrompinu“ og vopna ákveðna trúarhópa (eða þjóðernishópa) gegn öðrum og gegn stjórnvöldum sem losna þarf við. Þá birtist Al Kaída einfaldlega sem vígasveitir í uppreisn og borgarastyrjöld sem Vesturveldin og arabísk fylgiríki þeirra standa á bak við. Í Sýrlandi heita þeir Al Nusra. Þessi aðferð tókst vel í Líbíu – samstarf innlendra vígahópa og NATO hafði sigur. En taktíkin hefur mistekist í Sýrlandi, Assadstjórnin hefur staðið af sér atlöguna og aftur náð tökum á ástandinu. Þegar trúradeilutrompið virkar ekki má einmitt búast við sviðsettum hamfaraatburði til að réttlæta vestræna íhlutun. Gasárásin við Damaskus ber öll merki örþrifaráða, falsið skín í gegn.

Þórarinn Hjartarson

Færslur

SHA_forsida_top

Frábær skemmtidagskrá á friðarmálsverði

Frábær skemmtidagskrá á friðarmálsverði

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður kl. 19 á föstudagskvöld, eins og kynnt hefur verið hér á …

SHA_forsida_top

HM Ísland:Slóvenía

HM Ísland:Slóvenía

Sýnt verður beint frá leikjum Íslands á HM í handbolta í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði: Ísland út NATO!

Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði: Ísland út NATO!

Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði (UJH) héldu aðalfund sinn 15. desember og framhaldsaðalfund 19. janúar. Meðal …

SHA_forsida_top

Málsverður í Friðarhúsi, föstudag

Málsverður í Friðarhúsi, föstudag

Hinir sívinsælu fjáröflunarmálsverðir Friðarhúss halda áfram á nýju ári. Föstudagskvöldið 26. janúar verður efnt til …

SHA_forsida_top

HM Ísland:Þýskaland

HM Ísland:Þýskaland

Sýnt verður beint frá leikjum Íslands á HM í handbolta í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

HM Ísland:Pólland

HM Ísland:Pólland

Sýnt verður beint frá leikjum Íslands á HM í handbolta í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

HM, Ísland:Túnis

HM, Ísland:Túnis

Sýnt verður beint frá leikjum Íslands á HM í handbolta í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

HM, Ísland:Frakkland

HM, Ísland:Frakkland

Sýnt verður beint frá leikjum Íslands á HM í handbolta í Friðarhúsi. Ísland og Frakkland …

SHA_forsida_top

HM, Ísland:Úkraína

HM, Ísland:Úkraína

Sýnt verður beint frá leikjum Íslands á HM í handbolta í Friðarhúsi. Ísland og Úkraína …

SHA_forsida_top

Opið hús hjá SHA

Opið hús hjá SHA

Opið hús í Friðarhúsi frá 13 til 15. Heitt á könnunni.

SHA_forsida_top

Handbolti í Friðarhúsi

Handbolti í Friðarhúsi

Heimsmeistarakeppnin í handbolta karla hefst í Þýskalandi um helgina. Íslenska landsliðið leikur á laugardag, sunnudag …

SHA_forsida_top

Undirbúningsfundur v. aðgerða í mars

Undirbúningsfundur v. aðgerða í mars

Í lok mars minnast friðarsinnar upphafs innrásarinnar í Írak og inngöngu Íslands í NATO. Opinn …

SHA_forsida_top

Formsatriði fullnægt

Formsatriði fullnægt

Eins og lesendum þessarar síðu ætti að vera kunnugt, var nafni SHA breytt á landsfundi …

SHA_forsida_top

Félagsfundur MFÍK

Félagsfundur MFÍK

Opinn félagsfundur MFÍK í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

Opið hús hjá SHA

Opið hús hjá SHA

Opið hús hjá Samtökum hernaðarandstæðinga í Friðarhúsi frá kl. 13-15. Heitt á könnunni.