BREYTA

„Los cincos“ – Kúbumennirnir fimm

Kynningarfundur um mál fimmenninganna verður í sal MÍR, Hverfisgötu 105, fimmtudagskvöldið 31. mars klukkan 19:30. Irma González, dóttir eins af fimmenningunum, segir frá. Léttar veitingar verða í boði á vægu verði frá klukkan 19. Irma González, dóttir eins hinna svokölluðu „fimmmenninga“ frá Kúbu sækir Norðurlöndin heim á næstunni og verður hér á landi dagana 30.-31. mars, ásamt frænda sínum Orlando Sandoval. Hún talar máli föður síns og fjögurra annarra sem hlutu þunga dóma í Bandaríkjunum af pólitískum ástæðum. Réttarhöldin yfir þeim Gerardo Hernández, Antonio Guerrero, Ramón Labañino, Fernando González og René González hafa verið fordæmd alþjóðlega, en þeir hafa nú setið á þrettánda ár í bandarískum fangelsum, lengi í einangrun. Irma talar einnig máli móður sinnar og annarar konu sem fá ekki að heimsækja eiginmenn sína. „Glæpurinn” sem fimmmenningarnir drýgðu var að fylgjast með starfsemi hægrisinnaðra hópa af kúbönskum uppruna sem hafa staðið fyrir ofbeldisaðgerðum og hryðjuverkum á Kúbu og í lofthelgi Kúbu mörg undanfarin ár, með vitund og vilja bandarískra stjórnvalda. Þetta eru glæpahópar á borð við Alpha 66, F4 Commandos, Cuban American National Foundation og Brothers to the Rescue. Mennirnir voru handteknir 1998. Réttarhöldin fóru fram 2001 í Miami, borg þar sem stjórnvöld hafa lent í átökum við hægrisinna af kúbönskum uppruna og hatramt andrúmsloft ríkir gagnvart Kúbu. Markaðist samsetning kviðdómsins af því. Amnesty International lýsti því yfir „verulegum efasemdum“ um að réttarhöldin 2001 yrðu „sanngjörn og hlutlaus“. Tillögu verjanda um að flytja þau annað var hafnað. Þá kom saksóknari með „sannanir“ sem verjandinn fékk ekki að sjá. Fimmmenningarnar hlutu þunga dóma sem voru síðar „mildaðir“ árið 2008. Þeir voru dæmdir til 15–30 ára fangelsisvistar og hlaut einn þeirra tvöfaldan lífstíðardóm plús 15 ár fyrir upplogna ákæru um „samsæri um að fremja morð“. Robert Pastor, þjóðarráðgjafi Jimmy Carters fyrrum forseta Bandaríkjanna í málefnum Rómversku Ameríku hefur látið hafa eftir sér að það sé álíka sanngjarnt að rétta í Miami yfir þessum fimm mönnum og að rétta yfir ísraelskum leyniþjónustumönnum í Teheran. Fjölskyldur fimmmenninganna og stuðningsmenn þeirra hafa aflað víðtæks stuðnings. Í þeim hópi eru kunnir talsmenn mannréttinda, stjórnmálamenn og listamenn, þar á meðal Nóbelsverðlaunahafar. Þeir hafa hvatt til þess að mennirnir verði leystir úr haldi og að eiginkonurnar fái að koma til Bandaríkjanna til að hitta þá. Nú gefst tækifæri hér á landi til þess að kynnast málavöxtum og sjónarmiðum fimmmenninganna og stuðningsmanna þeirra frá fyrstu hendi. Irma González mun tala á opinberum fundi fimmtudagskvöldið 31. mars klukkan 19:30 í sal MÍR, Hverfisgötu 105 í Reykjavík. Léttar veitingar verða í boði frá klukkan 19. Nokkrir tenglar: http://mbl.is/folk/frettir/2010/09/17/penn_og_del_toro_kalla_eftir_lausn_kubverskra_njosn/ http://www.change.org/petitions/end_the_injustice_free_the_cuban_5_now#?opt_new=t http://news.bbc.co.uk/2/hi/americas/8537932.stm http://www.iacenter.org/cuba/walker-cuban5082609/ Stjórn Vináttufélags Íslands og Kúbu (VÍK) – www.simnet.is/cuba – cuba@simnet.is

Færslur

SHA_forsida_top

Félagsfundur MFÍK

Félagsfundur MFÍK

Opinn félagsfundur MFÍK í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

Hádegisverðarfundur um NATO

Hádegisverðarfundur um NATO

Hádegisverðarfundur SHA um NATO. Staðsetning auglýst síðar.

SHA_forsida_top

Stjórnarfundur Friðarhúss

Stjórnarfundur Friðarhúss

Stjórn Friðarhúss SHA ehf. fundar.

SHA_forsida_top

Félagsfundur SHA

Félagsfundur SHA

Almennur félagsfundur SHA í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss SHA.

SHA_forsida_top

NATO eftir kalda stríðið: árásargjarnt hernaðarbandalag heimsvaldasinna

NATO eftir kalda stríðið: árásargjarnt hernaðarbandalag heimsvaldasinna

Dagana 5. til 9. október verður haldinn í Reykjavík ársfundur NATO-þingsins. Ástæða er til að …

SHA_forsida_top

Stjórnarfundur í Friðarhúsi

Stjórnarfundur í Friðarhúsi

Stjórn Friðarhúss SHA ehf. fundar.

SHA_forsida_top

SHA bjóða Reykjavíkurborg til viðræðna

SHA bjóða Reykjavíkurborg til viðræðna

Á dögunum sendu Hernaðarandstæðinga eftirfarandi fréttatilkynningu til fjölmiðla, varðandi tillögur samtakanna varðandi mögulegan framtíðarrekstur Friðarstofnunar …

SHA_forsida_top

Svavar Knútur spilar á málsverðinum

Svavar Knútur spilar á málsverðinum

Fjáröflunarmðálsverður Friðarhússverður föstudagskvöldið 21. sept. kl. 19 eins og lesa má um hér á síðunni. …

SHA_forsida_top

Einkasamkvæmi í Friðarhúsi

Einkasamkvæmi í Friðarhúsi

Friðarhús er í útláni þetta kvöld.

SHA_forsida_top

Fjaröflunarmálsverður í Friðarhúsi

Fjaröflunarmálsverður í Friðarhúsi

Fyrsti fjáröflunarmálsverður Friðarhúss á þessu hausti verður haldinn föstudagskvöldið 21. september. Að venju hefst …

SHA_forsida_top

Einkasamkvæmi í friðarhúsi

Einkasamkvæmi í friðarhúsi

Friðarhús er í útláni þennan dag (Krissa).

SHA_forsida_top

Einkasamkvæmi í Friðarhúsi

Einkasamkvæmi í Friðarhúsi

Friðarhús er í útláni í dag. (Friðrik)

SHA_forsida_top

Fylgist með starfi SHA

Fylgist með starfi SHA

Hægt er að fylgjast með öllum helstu fréttum úr starfi Samtaka hernaðarandstæðinga hér á Friðarvefnum. …

SHA_forsida_top

Félagsfundur MFÍK

Félagsfundur MFÍK

Opinn félagsfundur MFÍK í Friðarhúsi.