BREYTA

Magnaður matseðill

Síðasti fjáröflunarmálsverður Friðarhúss á þessu vormisseri verður haldinn nk. föstudagskvöld, 28. maí. Kokkaþríeykið Jón Bjarni, Gísli Hrafn og Friðrik Atlasynir töfra fram margslunginn málsverð: * Kjötréttur að hætti byltingarsinnaða Mexíkóans * Ítalski grænmetisrétturinn gegn Berlusconi * Friðarsalat og lifibrauð hernaðarandstæðingsins * Súkkulaðikaka lífsins Þórunn Pálína Jónsdóttir og Ragnar Emilsson flytja tónlistaratriði. Borðhald hefst að venju kl. 19. Verð kr. 1.500.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …