BREYTA

Maímálsverður

Eftir nokkurt hlé hefjast fjáröflunarmálsverðir SHA í Friðarhúsi, Njálsgötu 87 á nýjan leik. Fyllsta öryggis verður þó gætt á viðburðinum. Geir Guðjónsson og Þórhildur Heimisdóttir elda. Geir sinnir kjötætum en Þórhildur grænkerum. Matseðill: * Satay kjúklingur með ofnsteiktum sætum kartöflum og gulrótum * Dahlalæða- linsubaunaréttur, með nýju grilluðu grænmeti og kjúklingabaunum. Sætkartöfluflatkökur og hrísgrjón * Kaffi og konfekt Karl Ágúst Úflsson rithöfundur mun lesa að borðhaldi loknu. Sest verður að snæðingi kl. 19:00. Verð kr. 2.000. Öll velkomin.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …