BREYTA

Marsfjáröflunar-málsverður SHA

Föstudaginn 31. mars verður fjáröflunarmálsverður SHA haldinn í Friðarhúsi og um leið verður landsfundur samtakanna settur formlega. Matseðill:
  • Dóra Svavarsdóttir og Heiða Dögg Liljudóttir bjóða upp á hlaðborð fyrir grænkera og kjötætur undir pakistönskum áhrifum. Ærpottréttur, grænmetispottréttur, grjón og eðalbrauð.
  • Kaffi og hjónabandssæla að hætti Þorvaldssonar.
Að borðhaldi loknu mun þjóðlagatvíeykið Bára og Chris taka lagið & Kristín Svava Tómasdóttir gerir grein fyrir verðlaunabókinni Farsótt. Sest verður að snæðingi kl. 19 en húsið opnar hálftíma fyrr. Verð kr. 2.500. Öll velkomin.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …