BREYTA

Mótmælum Nató-stjóranum

Fyrir dyrum stendur ráðstefna á vegum Nató og íslenskra stjórnvalda, sem haldin verður á Hilton hóteli n.k. fimmtudag. Ráðstefna þessi hefur þann megintilgang að leita réttlætinga fyrir áframhaldandi hernaðarumsvifum á Íslandi, s.s. heræfingum Nató-flugsveita og sívaxandi íslenskri Varnarmálastofnun. Vert er að vekja athygli á greinargóðri samantekt á Friðarvefnum, þar sem hernaðarútgjöld ríkissjóðs samkvæmt fjárlögum eru rakin. Hana má lesa hér að neðan. N.k. miðvikudag kl. 18:30 verður móttaka í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu fyrir gesti Nató-þingsins. SHA hvetja félagsmenn sína sem og aðra friðelskandi Íslendinga til að mæta fyrir framan Þjóðmenningarhúsið á þeim tíma og láta hraustlega í sér heyra.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …