BREYTA

NATO og norræn samvinna

Þegar Bandaríkjamenn réðust á Afghanistan í október 2001 höfðu þeir lítið lögmæti til þess. Eftir hryðjuverkaárásirnar mánuði fyrr var auðvitað ljóst að bregðast þurfti við og draga hryðjuverkamennina til saka. Þann 13. september, tveimur dögum eftir hryðjuverkin, barst boð frá Talibönunum um að Bin Laden yrði framseldur gegn framvísun sönnungargaga um sekt hans. Því var ekki tekið. Stofnsáttmáli Sameinuðu þjóðanna mælir fyrir um að aðildarríki skuli leysa í ágreiningi sín á milli með friðsamlegum hætti. Herum má aðeins beita í sjálfsvörn. Undantekningin á þessu getur aðeins orðið ef Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkir slíka hernaðaraðgerð.

Afskipti af Afghanistan

Að lýsa yfir stríði með einhliða hætti, með því að hefja sprengjuárásir 7. október var það versta sem Bandaríkjamenn gátu gert. Ekki lá fyrir ályktun öryggisráðs S.Þ. um slíka hernaðaraðgerð. Rúmum tveimur mánuðum eftir upphaf árásarstríðs Bandaríkjanna (20. desember) ályktaði Öryggisráðið loks um hernaðarbrölt í Afghanistan. Þá var samþykkt að stofna alþjóðlegt lið öryggissveita til þess að tryggja friðinn í Kabúl. Þessar sveitir fengu heitið ISAF (International Security Assistance Force). Tillaga um stofnun slíks öryggisliðs var lögð fram af Jack Straw, þáverandi utanríkisráðherra Bretlands, og byggði á niðurstöðum Bonn-samkomulagsins svonefnda. Á Bonn-ráðstefnunni sem haldin var til undirbúnings mættu 25 áhrifamenn með tengingu við stjórnmál í Afghanistan. Margir þeirra sem sátu ráðstefnuna fengu áhrifastöður í nýrri ríkisstjórn Hamid Karzai. Þeirra á meðal er dr. Mohammad Ishaq Nadiri, afganskur innflytjandi til Bandaríkjanna sem hefur verið prófessor við New York-háskóla frá 1975 og er meðlimur í áhrifamiklum samtökum um bandaríska utanríkisstefnu, Council on Foreign Relations. Atburðarásin er því eitthvað á þessa leið:
  1. Gerð er hryðjuverkaárás á Bandaríkin 11. september 2001
  2. Bandaríkin hefja árásarstríð gagnvart Afghanistan enda þótt slík aðgerð sé ólögmæt að alþjóðalögum
  3. Vesturveldin hrúga saman afgönsku áhrifafólki í Bonn til þess að plana framhaldið. Fremstur meðal jafninga er Hamid Karzai sem hefur sterk tengsl við Bandaríkin.
  4. Tveimur mánuðum eftir innrásina samþykkir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að tillögu hóps fólks sem þau stefndu saman um að stofna öryggissveitir til þess að tryggja öryggi á svæði sem eitt þeirra réðist með ólögmætum hætti inn á.

Málþingið í Norræna húsinu

Með þetta á bak við eyrað mætti undirritaður á málþing sem haldið var í Norræna húsinu 18. febrúar s.l. Þar tóku til máls:
  • Einar Gunnarsson, ráðuneytisstjóri, utanríkisráðuneytinu
  • Arto Räty, ráðuneytisstjóri finnska varnarmálaráðuneytisins
  • Veronika Wand-Danielsson, sendiherra Svíþjóðar gagnvart Atlantshafsbandalaginu
  • Morgen Haga Lunde, hershöfðingi yfirmaður herstjórnarmiðstöðvar norska hersins
  • Robert G. Bell, varnarmálaráðgjafi fastafulltrúa Bandaríkjanna hjá NATO
Silja Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt við stjórnmálafræðideild HÍ var fundarstjóri. Öll erindin voru einstaklega leiðinleg eins og gefur að skilja. Þessum embættismönnum og hermönnum er stefnt hingað til Íslands svo að herflugvélarnar þeirra geti spanderað rándýru flugvélaeldsneyti og flugmennirnir þeirra æft sig annars staðar en framan við skjáinn. Fólkinu langar líklega mest að kíkja á Geysi og borða hjá veislukokkunum í Bláa lóninu í boði skattborgara. Þess í stað þarf það að gefa þurra skýrslu um stöðlun hergagna milli Norðurlanda. Robert G. Bell talaði um "Framtíðarþróun Atlantshafsbandalagsins: Sjónarhorn Bandaríkjanna". Það er raunar merkilegt að enginn fjölmiðill skyldi pikka upp á því. (Höfum við misst metnaðinn? Ætluðu kratarnir ekki með okkur í sjálft Öryggisráðið?) Eins og Björn Bjarna orðar það er Bell "í hópi hæst settu bandarísku embættismanna sem talað hafa á opinberum fundi hér á landi síðan varnarliðið fór." Gott og vel. Hann talaði um að endurstilla (e. reset) ætti bandalagið eftir "high-tempo" verkefni á fyrsta áratug 21. aldarinnar. Það rímar vel við  yfirlýsingar Rumsfelds um umbreytingu á hernaðarmætti BNA (e. transformation). Herseta í fjarlægum löndum er hefur ekki verið vinsæl frá Víetnamstríðinu.

Stefna BNA gagnvart NATO

Bandaríkin hafa átt í nóg með mannfrekar aðgerðir í Mið-Austurlöndum og vilja leggja áherslu á hernaðarmátt sem stoppar stutt við en veldur miklum skaða. Drónaárásir eru fyrirtaksdæmi um slíka áherslubreytingu. Þegar ég spurði Bell út í það hvort við mættum eiga von á mannfalli saklausra borgara í framtíðarverkefnum NATO svaraði hann því til að mannfall saklausra borgara í seinni heimstyrjöldinni hefði verið töluvert meira! Að gera slíkan samanburð er vitaskuld fráleitt þar sem hernaðaraðgerðinar hafa ekki sama lögmæti heldur eru aðgerðirnar í Afghanistan þvert á móti án lögmætis. Því næst hafði hann eftir möntruna um að tækni væri sífellt að verða fulkomnari. Áður en ég fór á málþingið reyndi ég að lesa mér aðeins til um stöðu mála í dag. Þá rakst ég á eftirfarandi frétt á vef Guardian: US commander in Afghanistan apologises for Helmand drone strike. Núverandi yfirmaður NATO-heraflans í Afghanistan hringdi í Karzai í nóvember síðastliðinn til þess að biðjast afsökunar á því að drónar hefðu myrt barn með köldu blóði - af því að hann vill helst að Karzai undirriti samning um að bandarískar hersveitir verði áfram eftir að núverandi samningur um veru þeirra rennur út í árslok. Samkvæmt fréttinni hafði Dunford hershöfðingi samband af því að hann vildi að Karzai undirritaði framlenginu á samningu um hervernd. Ekki af því að það að myrða saklaus börn er stríðsglæpur. Grafið hérna ofan sýnir mánaðarleg mannfall bandamanna í Afghanistan, talan stóð í 3.423 þann 15. febrúar sl.l Enn hefur enginn bent undirrituðum á gagnsemi stríðsins sem farið var í fyrir rúmum 13 árum síðan.

Færslur

SHA_forsida_top

Friðarhús í úleigu

Friðarhús í úleigu

Friðarhús er í útleigu v. einkasamkvæmis.

SHA_forsida_top

8. mars: fundur í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur kl. 17

8. mars: fundur í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur kl. 17

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti. Opinn fundur fimmtudaginn 8.mars 2007 kl.17 í …

SHA_forsida_top

8. mars – 19. mars – 30. mars. Takið þessa daga frá!

8. mars – 19. mars – 30. mars. Takið þessa daga frá!

8. mars, fimmtudagur. Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti. Baráttufundur í Ráðhúsi Reykjavíkur …

SHA_forsida_top

Miðnefndarfundur SHA

Miðnefndarfundur SHA

Miðnefnd SHA fundar í Friðarhúsi

SHA_forsida_top

Bandarískar herstöðvar í Afríku og baráttan gegn þeim.

Bandarískar herstöðvar í Afríku og baráttan gegn þeim.

Þegar nafni samtaka okkar var breytt í Samtök hernaðarandstæðinga hættu þau ekki að vera samtök …

SHA_forsida_top

Ísland-Palestína

Ísland-Palestína

Félagið Ísland-Palestína fundar í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

Höfnum heræfingum á Íslandi! Höfnum innrás í Íran!

Höfnum heræfingum á Íslandi! Höfnum innrás í Íran!

Ástæða er til að vekja athygli á tveimur greinum sem nýlega hafa birst á vefritinu …

SHA_forsida_top

Byrjum Safnanótt í Friðarhúsi

Byrjum Safnanótt í Friðarhúsi

Safnanótt Reykjavíkur verður haldin föstudagskvöldið 23. febrúar n.k. Boðið verður upp á frábæra dagskrá um …

SHA_forsida_top

Undirbúningsfundur v. 8.mars

Undirbúningsfundur v. 8.mars

Samkoma á baráttudegi kvenna 8. mars undirbúin í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

Kvöldverður Í Friðarhúsi

Kvöldverður Í Friðarhúsi

Kvöldverður Í Friðarhúsi 23. febrúar Matseðill: Karrí kjúklingasúpa Pastasalat Hrísgrjónaréttur Nýbökuð brauð og hummus Unnur …

SHA_forsida_top

Athugasemdir við frumvarp um friðargæslu

Athugasemdir við frumvarp um friðargæslu

Fyrir Alþingi liggur frumvarp til laga um íslensku friðargæsluna. Elías Davíðsson hefur kynnt sér þennan …

SHA_forsida_top

Aðalfundur MFÍK

Aðalfundur MFÍK

Aðalfundur MFÍK, haldinn í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

Rúm 90% búa í friðlýstum sveitarfélögum

Rúm 90% búa í friðlýstum sveitarfélögum

Þau gleðilegu tíðindi hafa borist að bæjarstjórn Hornafjarðar hefur orðið við hvatningu Samtaka hernaðarandstæðinga og …

SHA_forsida_top

Friðarhús í útleigu, einkasamkvæmi

Friðarhús í útleigu, einkasamkvæmi

Friðarhús í útleigu, einkasamkvæmi

SHA_forsida_top

Undirbúningsfundur v. 8.mars

Undirbúningsfundur v. 8.mars

Undirbúningsfundur í Friðarhúsi fyrir samkomu á alþjóðlegum baráttudegi kvenna.