BREYTA

Njósnir og uppljóstranir! - SHA og MFÍK funda

Sameiginlegur félagsfundur MFÍK og Samtaka hernaðarandstæðinga verður haldinn í Friðarhúsi, Njálsgötu 87, miðvikudagskvöldið 13. nóvember kl. 20. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir fréttamaður og fyrrum ritstjóri Smugunnar talar um njósnir og uppljóstranir: Uppljóstranir Edward Snowden og Chelsea Manning ? Hverju breyta þær? Hversu mikilvægir eru uppljóstrarar lýðræðinu og hvernig er komið fram við þá? Á undan mun MFÍK bjóða upp á málsverð sem hefst kl. 19. Matseðill: Pottréttur Auðar og grænmetispottréttur Leu, brauð og salat, kaffi og súkkulaðimolar. - Verð kr. 1.500 Allir velkomnir.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …