BREYTA

Nýju stríðin og heilaþvottavélin mikla

eftir Þórarin Hjartarson Nýju stríðin og heilaþvottavélin mikla Voðaleg slagsíða er í fréttaflutningi íslenskra fjölmiðla frá átaka- og styrjaldarsvæðum. Túlkun átakanna í Líbíu og Sýrlandi undanfarið eitt og hálft ár minnir hastarlega á upphaf stríðsins í Írak 2003. Þá löptu íslensku fjölmiðlarnir upp lygasúpuna frá Bush og Blair um hættuna sem stafaði af Saddam Hússein og útheimti vestræn afskipti. Sjónvarpsstöðvarnar tvær sendu svo fall Bagdad í beinni með því að tengja sig inn á CNN og BBC World (líkt og gert var í Persaflóastríðinu 1991). Vestrið gegn smádjöflunum Þetta var endurtekið í stríðinu í Líbíu. Íslenskir fjölmiðlar lýstu því á þann veg að þar ætti frelsiselskandi almenningur og lofther NATO í höggi við ofbeldisfullan harðstjóra. Aðgerðin tókst vel. Sjúklingnum versnaði að vísu; eftir stendur land í henglum og tætlum – eins og Írak – en aðgangur vestrænna auðhringa að olíunni er nú óhindraður og Kínverjar eru reknir á dyr. Sem sagt gott. Átökum í Sýrlandi er nú lýst í öllum helstu fjölmiðlum landsins sem valdbeitingu stjórnvalda gegn saklausum almenningi. Staðreyndirar koma þó í ljós, en aðeins eftir krókaleiðum. Þar geysar stríð þar sem uppreisnaröflin (Frjálsi sýrlenski herinn og Sýrlenska þjóðarráðið) hafa frá fyrsta degi verið þungvopnuð og rækilega studd af vestrænum stórveldum og nánustu bandamönnum þeirra í arabaheiminum (einkum Katar og Sádi-Arabíu) og NATO-landinu Tyrklandi. Vel mætti draga inn önnur átakasvæði, s.s. Júgóslavíu, Sómalíu, Jemen eða Afganistan en því er sleppt, til að einfalda dæmið, og einkum lögð til grundvallar stríðin í arabaríkjunum – Írak, Líbíu og Sýrlandi – þar sem málvextir eru innbyrðis hliðstæðir. Að einu mikilvægu leyti voru þó málvextir öðru vísi í Írak en í hinum tveimur löndunum: innrásin þar beindist að nokkru leyti gegn hagsmunum Frakka, Þjóðverja og fleiri Evrópuríkja sem höfðu gott samband við Saddam þannig að NATO var klofið í afstöðu sinni, á meðan NATO var sameinað gegn Líbíu og virðist líka vera sameinað gegn Sýrlandi. Fréttastöðvarnar skilgreina hvað er vandamálið, hvar hættan liggur. Núna fáum við að heyra að hún liggi í háttarlagi stjórnvalda í Sýrlandi og Íran, og stuðningi Kínverja og Rússa við þau. Öllu er snúið á haus. Vandamálið er ekki herveldið mikla heldur þeir sem ekki hlýða því. Hreinræktuðum ránsleiðöngrum heimsvaldasinna er lýst sem „mannúðaríhlutun“. Fréttaflutningurinn hvetur vesturlandabúa til „aðgerða“ og býr jarðveginn undir þær. Markmiðið er alltaf hið sama: valdaskipti – að grafa undan og steypa „óæskilegum“ ríkisstjórnum. Kerfisbundin slagsíða Fréttastraumurinn er yfirþyrmandi, fréttahaukarnir eru „á staðnum“, slagsíðan er öll á eina hlið – þótt fréttir komi frá óteljandi fréttastöðvum. Það þarf sterka sannfæringu til að kyngja ekki a.m.k. hluta af þessum fréttagusum, þó að við vitum að við höfum verið margplötuð áður. Rétt er að taka strax fram að þetta er ekki séríslenskt, íslenskar fréttastofur gera jú lítið annað en kópíera efni frá voldugri fréttastofum utan lands. Í nálægum löndum er slagsíðan söm eða svipuð og hér. Vandamálið er kerfisbundin slagsíða í fréttaflutningi á Vesturlöndum – og slagsíðan er hvergi meiri en í umfjöllun um stríð eða átök á alþjóðavettvangi. Nokkrar mikilvægar spurningar í þessu sambandi: Hvaðan kemur þessi miðstýring? Af hverju er þessi fréttaflutningur ótal frjálsra fréttastofa svona samhljóða? Af hverju er hann svo fjarri sannleikanum? Í upphafi máls er óhjákvæmilegt að benda á þá þróun heimsmála sem varð eftir fall Múrsins. Þá varð heimurinn „einpóla“: Efnahagslegir, pólitískir og hernaðarlegir yfirburðir USA urðu gífurlegir. Sovétríkin skildu eftir tómarúm. Greið leið opnaðist fyrir hnattvæðingu vestrænna auðhringa. USA og bandamenn höfðu ægivald á alþjóðavettvangi og fóru nú að mestu sínu fram, s.s. innan SÞ. Ef ríkisstjórnir sveigðu sig ekki að reglum vestrænnar hnattvæðingar útheimti það valdaskipti. Bandarísk/vestræn hernaðarleg stórsókn hófst og var sérstaklega beint að hinum olíuauðugu Miðausturlöndum, NATO var hnattvætt. (Sjá grein eftir greinarhöfund, „Sýrland og Íran eru peð í tafli um heimsyfirráð“ sl. sumar á vefnum http://attac.is). Nú, rúmum 20 árum eftir fall Múrsins, hefur efnahagslegt forskot Bandaríkjanna á keppinauta sína stórminnkað. Hernaðarlegir yfirburðir þeirra eru hins vegar óskertir. Pólitískt og diplómatískt áhrifavald er sömu leiðis lítt skert. Hin miklu yfirtök Vesturveldanna á sviði fjölmiðlanna er lykilþáttur í valdamaskínu þeirra. Hvernig er sú maskína saman sett? Samþjöppun og miðstýring fjölmiðlunar Þá er fyrst til að taka að flestar stærstu og áhrifaríkustu fréttastofur Vesturlanda eru í eigu stórra og voldugra auðhringa. Þetta á ekki síst við um bandarískar sjónvarpsstöðvar. Eigendurnir verða sífellt færri, sífellt stærri og voldugri. Fimm eigendur fjölmiðla, ekki síst ljósvakamiðla, í Bandaríkjunum ráða markaðnum:
    a) Disney – risi í kvikmyndum, bókum, blöðum og sjónvarpsreksktri, á m.a. sjónvarapsstöðina ABC. b) Time Warner – risi í kvikmyndum og einnig sjónvarpsrekstri, á m.a. CNN. c) News Corporation Limited/Rupert Murdoch sem á m.a stöðina Fox News, blaðið The Wall Street Journal og kvikmyndafyrirtækið Twentieth Century Fox. d) Westinghouse sem á stærstu sjónvarpsstöð Bandaríkjanna, CBS-Corporation. e) General Electric sem á sjónvarpsstöðvanetið NBC.
Ekki þarf blöðum um það að fletta: Þessir voldugu fjölmiðlaauðhringar standa fyrir ameríska menningarlega heimsvaldastefnu og hafa allan heiminn undir. Þeir hafa að því leyti sameiginlega heimssýn, sýn sem skáldið lýsti í rímu sinni um Disney:
    Nemur löndin Andrés önd argvítugur steggur. Dauða hönd á dal og strönd Disneyvélin leggur. Disneyher í flokkum fer fyllir hugarkeröld þar til veröld okkar er orðin DISNEYVERÖLD. (Þórarinn Eldjárn, úr Disneyrímum, 1978)
Hiklaust má gera ráð fyrir að fjölmiðla- og kvikmyndarisarnir amerísku samsami sig mjög bandarískri utanríkis- og útþenslustefnu sem beinist m.a. að því að halda við völd vestrænt sinnuðum ríkisstjórnum vítt um heim. Tilkoma nýrra slíkra stjórna – eða þá tilkoma stjórna sem andsnúnar eru vesturveldum – hefur mikil og bein áhrif á gróða þeirra og tap. Öll framantalin sjónvarpsfyrirtæki eru áróðursmaskínur bandarískrar heimsvaldastefnu þó að þau séu einkastöðvar og formlega óháðar. Þær eru auðvitað fjárhagslega háðar eigendum sínum, en það er beinlínis meginatriði í heilaþvottaprógramminu að þær LÍTI ÚT fyrir að vera óháðar. Sumir fjölmiðlaeigendurnir eiga þó meiri og beinni tengsl við bandaríska hernaðarstefnu en þetta. Auðhringurinn General Electric, eigandi NBC, hefur lengi verið opinber stuðningsaðili Repúblikanaflokksins. Rannsóknarblaðamenn vefsíðunnar FAIR sem könnuðu hagsmuni fyrirtækisins af fyrra stríðinu í Írak, árið 1991, fundu að það framleiddi eða skaffaði varahluti í nærri öll vopnakerfi sem Bandaríkjaher notaði í stríðinu. (sjá Norman Solomon, „The Military-Industrial-Media Complex“) Jafnvægið í fréttaflutningnum kannað Íraksstríðið 2003 var skýrt prófmál um pólitískt hlutverk fjölmiðlanna. Áðurnefnd vefsíða, FAIR, kannaði jafnvægið í fréttaflutningi hjá sex bandarískum sjónvarpsstöðvum þrjár fyrstu vikur stríðsins. Útkoman var þessi:
    Nærri tveir þriðju allra viðmælenda, 64%, voru hlynntir stríðinu og 71% bandarískra viðmælenda voru það. Neikvæðir gagnvart stríðinu voru 10% viðmælenda en aðeins 6% þeirra sem ekki voru Írakar og bara 3% bandarískra viðmælenda. Þannig að það var sex sinnum líklegra að áhorfendur sæju viðmælanda jákvæðan gagnvart stríðinu en neikvæðan, og ef aðeins voru taldir bandarískir viðmælendur var hlutfallið 25 á móti 1 (sama grein).
Sú evrópsk stöð sem langmest áhrif hefur á sviði fréttaflutnings er breska BBC, gömul og fjársterk útvarpsstöð sem notið hefur virðingar. Fjölmiðlarýnirinn David Miller gerði „jafnvægið“ í framsetningu hennar á Íraksstríðinu 2003 að umtalsefni meðan stríðið stóð sem hæst:
    BBC sneri blinda auganu að hinni klofnu afstöðu þjóðarinnar. Rannsókn á vegum Frankfurter Allgemeine Zeitung í fimm löndum leiddi í ljós að BBC sýndi lægst hlutfall andmæla gegn stríðinu af þeim öllum, aðeins 2% miðað við 7% hjá bandarísku sjónvarpsstöðinni ABC („Taking sides“, The Guardian 22/4 2003).
Loks þarf að segja nokkur orð um stöðina Al-Jazeera sem gegnt hefur veigamiklu hlutverki í fréttaflutningi um Miðausturlönd. Sú stöð var stofnuð 1996 í Katar og var lengi ferskur andi í fjölmiðlaheimi, ekki síst í málefnum Palestínu en einnig kringum Íraksstríðið 2003. Stöðin eignaðist þá trygga áhorfendur meðal heimsvaldaandstæðinga á Vesturlöndum. Síðan hefur eitthvað slæmt gerst af því gagnvart Líbíu og Sýrlandi hefur hún fengið sömu einkenni og aðrar sjónvarpsstöðvar í arabalöndum: að vera verkfæri eigin stjórnvalda, í þessu tilfelli emírsins al-Thani (náfrænda þess sem um tíma eignaðist 5% í Kaupþingi), en hefur síðan leikið sístækkandi hlutverk í Arabalöndum í þágu Vesturveldanna og er m.a., ásamt Sádi-Arabíu, sá aðili sem mest hefur útvegað líbískum og sýrlenskum uppreinarmönnum vopn. Fréttaflutningur stöðvarinnar í greindum styrjöldum hefur lagað sig að þessu hlutverki og verið tekið feginsamlega af stóru vestrænu fréttastofunum. Sú staðreynd að eigandi stöðvarinnar er katarska ríkið hefur nú greinilega gert sig gildandi (sjá Nicholas Noe & Walid Raad, www.bloomberg.com/news/2012-04-09/al-jazeera-gets-rap-as-qatar-mouthpiece.html). Framleiddur sannleikur – framleitt samþykki Fréttastöðvar þær sem fylgja meginstraumnum leita ekki sannleikans, þær framleiða „sannleika“ í samræmi við hagsmuni eigenda sinna. „Sannleikurinn“ sem þær framleiða er heimsvaldasinnaður sannleikur. Fyrir alþýðu og kúgaðar þjóðir er það blekkingavefur. Noam Chomsky og Edward S. Herman skilgreindu árið 1988 „framleitt samþykki“ í bókinni Manufacturing Consent. Framleitt samþykki fæst gegnum það áróðurskerfi sem fjölmiðlanetið myndar.
    Það sem fjölmiðlarnir gera í reynd er að gefa sér ákveðnar meginforsendur sem tjá grundvallarhugmyndir áróðurskerfisins – hvort sem það snertir Kalda stríðið, efnahagskerfið eða „ríkishagsmuni“ o.s.frv. – og leggja svo upp ákveðna umræðu innan þessa ramma, svo að umræðurnar styrkja aðeins þessar forsendur, innprenta þær í huga fólks sem það heildarsvið skoðana sem til greina koma. (www.uiowa.edu/~cyberlaw/lem02/chomsky1.html)
Chomsky og Herman sýna fram á hvernig frétta- og afþreyingarstöðvar helga sig einfaldlega gróðasókn innan ríkjandi kerfis á grundvelli ráðandi samþykkis elítunnar. Þar við bætist svo alþjóðleg miðstýring efnisins, og það á alveg sérstaklega við um átök á alþjóðavettvangi:
    Ef þið viljið ræða framsetningu frétta og upplýsinga þá er meginmunstrið það að nokkrir fjölmiðlar eru það sem stundum er nefnt „dagskrár-ákvarðandi“ miðlar: sjónvarpsstöðvar sem leggja fram þann ramma sem aðrir minni miðlar þurfa í megindráttum að laga sig að (sama heimild).
Þessi kenning sannar sig í umfjöllun um átök á alþjóðavettvangi sbr. það sem áður er sagt um upphaf Íraksstríðsins 2003. Í slíkum átökum er hagsmunagæslan allra skýrust. Stóru og voldugu stöðvarnar gefa tóninn, hinar bergmála. Útkoman er altént ein risavaxin og samstillt vestræn áróðursvél. Á Íslandi er hún t.d. miklu skilvirkari en hún var um 1970 þegar Víetnamstríðið stóð sem hæst. Þá var alla vega Þjóðviljinn til og fólk vissi að til var annar skilningur á þessu stríði. Nú er enginn sjáanlegur á munur á milli helstu fjölmiðla í landinu hvað þetta varðar. Vélin er líka skilvirkari en hún var 1988, þegar Chomsky og Herman skrifuðu um „framleitt samþykki“ – þetta var áður en Austurblokkin féll og heimurinn varð einpóla. Vélin er líka mun þróaðri og afkastameiri til miðstýringar en fjölmiðlar í svonefndum „alræðisríkjum“. Þar vissu og vita allir að fjölmiðlarnir eru hvorki frjálsir né óháðir svo fólk leitar annað eftir upplýsingum. Í okkar vestræna heimi er fréttaflutningurinn jafn miðstýrður en lítur út fyrir að vera frjáls og óháður. Í því liggur hinn blekkjandi styrkur hans.

Færslur

SHA_forsida_top

Miðausturlönd - eyðilegging samkvæmt áætlun

Miðausturlönd - eyðilegging samkvæmt áætlun

Þórarinn Hjartarson á Akureyri, félagsmaður í SHA, sendi Friðarvefnum þessa samantekt á stríðsrekstrinum í Miðausturlöndum. …

SHA_forsida_top

Októbermálsverður, föstudagskvöld

Októbermálsverður, föstudagskvöld

Föstudagskvöldið 31. október n.k. verður fjáröflunarmálsverður Friðarhúss haldinn. Gestakokkur kvöldsins er friðardúfan, Mosfellingurinn og spurningakeppnisforkólfurinn …

SHA_forsida_top

Ameríka hér og þar

Ameríka hér og þar

Fimmtudagskvöldið 23. október munu MFÍK og SHA standa sameiginlega fyrir fundi í Friðarhúsi. Sólveig Anna …

SHA_forsida_top

Hervædd viðbrögð við ebólu

Hervædd viðbrögð við ebólu

Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að um þessar mundir geysar versti ebólufaraldur sögunnar …

SHA_forsida_top

Dirty Wars á mánudagskvöld

Dirty Wars á mánudagskvöld

Heimildarmyndin Dirty Wars hefur vakið verðskuldaða athygli, en í henni er athyglinni beint að stríðsrekstri …

SHA_forsida_top

Haustmálsverður friðarsinnans, 26. sept.

Haustmálsverður friðarsinnans, 26. sept.

Fyrsti fjáröflunarmálsverður haustmisseris verður haldinn í Friðarhúsi, Njálsgötu 87, föstudagskvöldið 26. september. Jón Bjarni, Gísli …

SHA_forsida_top

Ályktun vegna fjárlagafrumvarps

Ályktun vegna fjárlagafrumvarps

Samtök hernaðarandstæðinga lýsa vonbrigðum sínum með fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2015. Sem fyrr er ætlunin …

SHA_forsida_top

Hiroshima og Nagasaki og nokkrar staðreyndir

Hiroshima og Nagasaki og nokkrar staðreyndir

Eftirfarandi grein Gylfa Páls Hersis birtist fyrst í Fréttablaðinu fimmtudaginn 11. september, eftir að hafa …

SHA_forsida_top

Liðsafnaður í ranga átt – á ný.

Liðsafnaður í ranga átt – á ný.

Þórarinn Hjartarson á Akureyri, félagsmaður í SHA, sendi Friðarvefnum þessa sögulegu samantekt á málefnum Úkraínu. …

SHA_forsida_top

Skiltasmiðja á menningarnótt

Skiltasmiðja á menningarnótt

Samtök hernaðarandstæðinga láta til sín taka á menningarnótt, laugardaginn 23. ágúst og bjóða upp á …

SHA_forsida_top

Spennandi uppákomur Róttæka sumarháskólans

Spennandi uppákomur Róttæka sumarháskólans

Róttæki sumarháskólinn hefur rækilega fest sig í sessi. Nokkur undanfarin ár hefur hann staðið fyrir …

SHA_forsida_top

Tortíming farþegaþotu: hryðjuverk undir fölsku flaggi og stríðsundirbúningur

Tortíming farþegaþotu: hryðjuverk undir fölsku flaggi og stríðsundirbúningur

Þórarinn Hjartarson á Akureyri sendi Friðarvefnum meðfylgjandi grein til birtingar: Michael Bociurkiw var annar af …

SHA_forsida_top

Myndin af Anders Fogh

Myndin af Anders Fogh

Birgitta Bergþóru- Jónsdóttir þingmaður Pírata vakti í dag athygli á sérkennilegri mynd af Anders Fogh …

SHA_forsida_top

Ræða við Minjasafnstjörnina á Akureyri

Ræða við Minjasafnstjörnina á Akureyri

Ragnheiður Skúladóttir leikstjóri flutti ávarp á kertafleytingu á Akureyri þann 6. ágúst sl. Kæra samferðafólk …

SHA_forsida_top

Ávarp á kertafleytingu

Ávarp á kertafleytingu

Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur flutti meðfylgjandi ávarp á kertafleytingunni á Tjörninni þann 6. ágúst. Þegar …