BREYTA

Októberfest-málsverður í Friðarhúsi

Fjáröflunarmálsverðir Samtaka hernaðarandstæðinga í Friðarhúsi hefja göngu sína að nýju eftir sumarfrí.
Bjarki Hjörleifsson og Jónína Riedel sjá um eldamennskuna sem verður alvöru þýsk októberfest-veisla með pylsum og bulsum fyrir kjötætur jafnt sem grænkera. Engar kröfur eru þó gerðar um lederhosen-klæðaburð...
Að borðhaldi loknu verður kaffi og konfekt en því næst tekur við menningardagskrá. Anna Ólafsdóttir Björnsson les úr nýrri glæpasögu og trúbadorinn Linus Orri tekur lagið.
Verð kr. 2.000. Öll velkomin

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …