BREYTA

Októbermálsverður, föstudagskvöld

Föstudagskvöldið 31. október n.k. verður fjáröflunarmálsverður Friðarhúss haldinn. Gestakokkur kvöldsins er friðardúfan, Mosfellingurinn og spurningakeppnisforkólfurinn Ævar Örn Jósepsson. Matseðillinn er sem hér segir: * Hakkabuff með lauk, brúnni sósu, kartöflum, grænum baunum, rauðkáli og rabbarbarasultu * Grænmetisbuff * Kaffi & rúlluterta með vanilluhindberjarjóma(osts)kremi í eftirrétt Að borðhaldi loknu munu rithöfundarnir Guðrún Eva Mínervudóttir og Ófeigur Sigurðsson lesa úr nýútkomnum skáldverkum sínum. Sest verður að snæðingi kl. 19, en húsið opnað hálftíma fyrr. Verð kr. 2.000. Allir velkomnir.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …