BREYTA

Opinn miðnefndarfundur SHA

Friðarsinnar eru nú farnir að geta gengið að því vísu að haldnir séu fundir í Friðarhúsi, á horni Njálsgötu og Snorrabrautar, á hverju fimmtudagskvöldi. Fimmtudagurinn 27. október verður þar engin undantekning, því kl. 20 verður þar opinn fundur miðnefndar SHA um undirbúning landsráðstefnu SHA, sem haldin verður 5. nóvember nk. Hvað þarf að gera til að Friðarhús verði tilbúið undir formlega opnun þann 5. nóv.? Hvernig skal opnunarhátíðinni háttað? Hvaða starfsemi á að fara fram í húsnæðinu til jóla? Allt þetta og margt fleira verður rætt á fimmtudagskvöldið. Friðarsinnar eru hvattir til að mæta. Kaffi á boðstólum og léttar veitingar á vægu verði.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …