BREYTA

Risaveldi á flótta - mótmælum frestað!

Bandaríska herveldið virðist hafa hörfað undan friðarvilja Norðlendinga. Aðflugsæfingum hefur a.m.k. verið frestað um óákveðinn tíma. Fyrir vikið hafa Samtök hernaðarandstæðinga á Norðurlandi ákveðið að fresta fyrirhugaðri mótmælastöðu við Akureyrarflugvöll klukkan 14.30, laugardaginn 8. ágúst. Samtökin hafa þó haft njósnir af því að hernaðarbrölti sé ekki lokið á Akureyrarflugvelli og að umræddar æfingar muni fara fram síðar í vikunni. Því verður boðað til nýrrar mótmælastöðu um leið og það liggur fyrir hvenær þær verða.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …