BREYTA

SHA og MFÍK funda um þjóðernisöfgastefnur

Samtök hernaðarandstæðinga og MFÍK efna til sameiginlegs fundar í Friðarhúsi, Njálsgötu 87, mánudagskvöldið 10. október kl. 20. Á fundinum mun Eva Hauksdóttir, rithöfundur og aðgerðarsinni flytja erindi um þjóðernisöfgahreyfingar í Evrópu og teikn um að sambærileg öfl séu að ná fótfestu hér á landi. Erindið kallar Eva: Nazisminn bankar bakdyramegin - Um uppgang nýnazisma á Íslandi. Helstu hreyfingar og varnir gegn þjóðernisstefnu.“ Að erindi loknu verða almennar umræður. SHA og MFÍK

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …