Að venju verður fjölbreytt dagskrá í Friðarhúsi, á horni Njálsgötu og Snorrabrautar, á Menningarnótt Reykjavíkur laugardaginn 23. ágúst.
kl. 16:00 - Húsið opnað.
kl. 16.00-22.30 - Ljósmyndasýning eftir Hörpu Stefánsdóttur
kl. 17.00-19:30 - Friðsæl grænmetissúpa í boði hússins
kl. 16:30 - Kvikmyndasýning. Sýnd verður nokkurra ára gömul heimildarmynd Evu Maríu Jónsdóttur og Margrétar Jónasdóttur um Gervasoni-málið
kl. 20.00 - Ljóðskáld og hagyrðingar kveða um frið
kl. 21.00 - Hörður Torfason söngvaskáld leikur
kl. 21.30 - Tónlist, fleiri stíga á stokk, þar á meðal kemur Heiða upp úr klukkan tíu.
Létt og skemmtileg stemning á besta stað í bænum. Allir velkomnir!