BREYTA

Spennandi dagskrá á Menningarnótt

reykjavikNæstkomandi laugardag verður efnt til menningarnætur í Reykjavík. Að því tilefni verður staðið fyrir margvíslegri dagskrá í Friðarhúsi. Kl. 17 verður myndasýning, þar sem sýnd verður fágæt fréttakvikmynd frá Austurvelli 30. mars 1949 og í framhaldi af því myndin Nafnakall frá 1989, þegar hópur leikara sviðsetti atkvæðagreiðsluna við NATO-inngönguna á Alþingi. Kl. 18 og 20:30 Sögur af mótmælavaktinni – þátttakendur í Kárahnjúkamótmælum sumarið 2006 segja frá reynslu sinni og upplifun í máli og myndum. Einstakar frásagnir og fjörlegar umræður. Allir friðarsinnar hjartanlega velkomnir.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …