BREYTA

Staðið á blístri - legið á hleri

KokkurN.k. föstudagskvöld verður hinn mánaðarlegi fjáröflunarmálsverður Friðarhúss. Matseðillinn er að vanda glæsilegur: Kjúklingasalat með austurlensku ívafi Litlar kjötbollur með heimagerðu remúlaði Pasta með rækjum Vatnsmelónusalat með osti Heimabakað brauð Kokkar eru Sigríður Kristinsdóttir og Guðrún Bóasdóttir(Systa) Borðhald hefst kl. 19 en húsið opnar hálftíma fyrr. Máltíðin kostar litlar 1.500 kr. Það er SHA gleðiefni að upplýsa að Kjartan Ólafsson fv. Alþingismaður og framkvæmdastjóri Samtaka hernámsandstæðinga mun mæta og fjalla um hleranamálið, sem verið hefur mjög í fréttum undanfarna daga. Það er því óhætt að lofa sögulegri samkomu.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …