BREYTA

Úkraína og Krímskagi – félagsfundur SHA

Málefni Úkraínu hafa mikið verið til umræðu upp á síðkastið vegna pólitísks óstöðugleika og rússneskrar íhlutunar. Samtök hernaðarandstæðinga boða til opins félagsfundar um málið miðvikudaginn 26. mars kl. 20 í Friðarhúsi, Njálsgötu 87. Leitast verður við að varpa ljósi á bakgrunn átakanna í landinu og þróun síðustu mánaða. Framsögumaður verður Sverrir Jakobsson sagnfræðingur, en að erindinu loknu mun hann sitja fyrir svörum í pallborði ásamt Árna Bergmann rithöfundi. Allir velkomnir.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …