BREYTA

Undirskriftasöfnun gegn bandarískum herstöðvum í Tékklandi

Í Tékklandi hefur á undanförnum misserum verið háð hörð barátta gegn áformum tékkneskra og bandarískra stjórnvalda um að koma þar upp bandarískri herstöð í tengslum við hið umdeilda gagneldflaugakerfi sem Bandaríkin eru að koma sér upp. Öflug hreyfing hefur myndast gegn þessum áformum og margar sveitarstjórnir á því svæði, þar sem herstöðinni er ætlaður staður, hafa ályktað gegn henni. Brýnt er að andstæðingar þessara áforma í Tékklandi fái sem víðtækastan stuðning. Húmanistahreyfingin í Tékklandi hefur nú hafið hafið söfnun undirskrifta gegn þessum áformum og er hægt að skrá sig rafrænt á vefsíðinni http://petice.nenasili.cz/?lang=en Sjá líka CommonDreams.org.

Færslur

SHA_forsida_top

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Ályktun vegna umferðar kjarnorkuskipa í efnahagslögsögu Íslands

Samtök herstöðvaandstæðinga vekja athygli á þeirri hættu sem vera rússneskra herskipa í efnahagslögsögu Íslands hefur …