BREYTA

Utanríkisstefna óskhyggjunnar

sverrirjakobssoneftir Sverri Jakobsson Birtist í Fréttablaðinu 30. nóv. 2010 Núverandi ríkisstjórn hefur að ýmsu leyti sérstöðu á sviði utanríkismála enda stjórnarflokkarnir með mjög ólíka stefnu í þeim málaflokki. Þetta hefur verið áberandi í tengslum við Evrópusambandið og aðildar­umsókn Íslands að því. Þetta á ekki síður við varðandi afstöðuna til NATO. Samfylkingin styður aðild að þessu hernaðarbandalagi og reiðir sig þar á stuðning stjórnarandstöðuflokkanna, einkum Sjálfstæðisflokks og Framsóknar­flokks. Þessi stefna er afleiðing seinustu kosningaúrslita og það er ekkert óeðlilegt að flokkar sem eru ósammála í þessu máli komi sér saman um að mynda ríkisstjórn til að koma fram öðrum málum. Finna má dæmi um þetta frá ýmsum öðrum ríkjum, t.d. Danmörku, þar sem utanríkispólitíski meirihlutinn var annar en ríkisstjórnarmeirihlutinn á níunda áratugnum. Á hinn bóginn er engin ástæða til að breiða yfir þennan ágreining eða láta eins og hann sé ekki til. Viðleitni til þess má finna í skrifum forsætis­ráðherra og utanríkisráðherra að undanförnu. Þar reyna þau að gera NATO aðlaðandi í augum friðarsinna með því að gefa til kynna að bandalagið hafi breyst. Nánari athugun á málavöxtum styður hins vegar ekki þá skoðun. Það er rétt að eftir að hann var kjörinn Bandaríkjaforseti gaf Barack Obama til kynna að hann hygðist breyta verulega um stefnu varðandi vígbúnað og afvopnun. Stærsta breytingin var sú að Bandaríkin hafa nú gert kjarnorkuafvopnun að lokamarkmiði sínu. Fyrir yfirlýsingar sínar í þessum málum fékk Obama friðarverðlaun Nóbels 2009. Sú viðurkenning var þó of snemmbær. NATO-fundurinn á dögunum samþykkti stefnu sem er í meginatriðum sú sama og var ákvörðuð á svipuðum fundi 2008, þegar George W. Bush var Bandaríkjaforseti. Sérstaklega er eftirtektarvert að ekki skuli hróflað við kjarnorkustefnu bandalagsins. Ef mark væri takandi á yfirlýsingum Obamas um kjarnorku­afvopnun hefði NATO getað stigið ýmis skref í átt að kjarnorkuafvopnun. Í fyrsta lagi með því að falla frá núverandi stefnu sem felur í sér að bandalagið áskilur sér rétt til að beita kjarnorkuvopnum að fyrra bragði. Það gerðist ekki heldur rígheldur NATO í þá stefnu. Þetta gerir það að verkum að eldflaugavarnakerfi sem bandalagið kemur sér upp verður ekki skilgreint öðruvísi heldur en sem árásarkerfi. Með þessu kerfi kemur bandalagið sér upp aðstöðu til að gera kjarnorkuárásir á önnur lönd án þess að þurfa að óttast gagnárás. Slíkt er ögrun við öll kjarnorkuveldi sem standa utan þessa samkomulags, þ.á m. Kína, Indland og Pakistan. Það felur einnig í sér aukna hótun um árás á hvert það ríki sem Bandaríkin ákveða að skilgreina sem óvinaríki hverju sinni, óháð því hvort það hafi yfir kjarnorkuvopnum að ráða eða ekki. Eina breytingin á fyrri samþykktum um eldflaugavarnir er aukið samráð við Rússland. Í því felst þó afar lítið framfaraspor því að eftir sem áður mynda slíkar eldflaugavarnir ógn við öll ríki þriðja heimsins og þar af leiðandi mikinn meirihluta jarðarbúa. Í öðru lagi hefði bandalagið lagt eitthvað að mörkum til að draga úr útbreiðslu kjarnorkuvopna, með því að flytja bandarísk kjarnorkuvopn frá Þýskalandi, Ítalíu, Hollandi, Belgíu og Tyrklandi. Engin slík ákvörðun var þó tekin. Í því ljósi eru yfirlýsingar um andstöðu við útbreiðslu kjarnorkuvopna markleysa. Í þeim felst ekki annað en að Bandaríkin vilja taka sér einokunarrétt á því að breiða út kjarnorkuvopn. Í þriðja lagi gætu NATO-ríkin hafa tekið ákvörðun um að styðja framvegis við bakið á einni af þeim tillögum sem reglulega koma fyrir allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna, um að ríkjum heimsins beri að ná samkomulagi um að banna hvers konar framleiðslu og meðferð kjarnorkuvopna, ekki síst beitingu kjarnorkuvopna eða hótun um að beita þeim. Jafnframt beri að útrýma slíkum vopnum hið bráðasta. Hingað til hafa NATO-ríkin, ásamt Rússlandi, tilheyrt fámennum minnihlutahópi ríkja sem standa gegn slíkum tillögum. Ástæða væri til þess að fagna ef NATO-ríki tækju skref til þess að vinna að friði í heiminum í stað þess að vera ein helsta ógnin við hann. En það er ekki nóg að tala um að þjóðir vilji frið og afvopnun þegar þær eru ekki reiðubúnar að stíga örsmá skref í þá átt. Hvað varðar „friðarbandalagið" NATO þá hefur bilið á milli orða og athafna aldrei verið breiðara.

Færslur

SHA_forsida_top

Miðnefndarfundur SHA

Miðnefndarfundur SHA

Miðnefnd SHA fundar í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

Öryggisvottorð í þágu NATO

Öryggisvottorð í þágu NATO

Í dag, 7. nóv. 2006, birtist afar athyglisverð frétt á forsíðu Fréttablaðsins. Hún fjallar um …

SHA_forsida_top

Húsin á heiðinni

Húsin á heiðinni

Eftirfarandi grein Þorleifs Friðrikssonar sagnfræðings birtist í Morgunblaðinu 2. nóvember. Fleiri greinar um atvinnustarfsemi …

SHA_forsida_top

Kannski getum við gert upp sakirnar

Kannski getum við gert upp sakirnar

Eftirfarandi grein Ragnars Óskarssonar birtist í Morgunpósti VG 31. október. Líklega munum við flest …

SHA_forsida_top

Viðtal við Vigfús Geirdal um símhleranir og fleira á Morgunhananum

Viðtal við Vigfús Geirdal um símhleranir og fleira á Morgunhananum

Í þættinum Morgunhaninn á Útvarp Sögu 30. nóvember ræddi Jóhann Haukson við Vigfús Geirdal sagnfræðing …

SHA_forsida_top

Baráttan heldur áfram!

Baráttan heldur áfram!

Húsfyllir var á hinum mánaðarlega föstudagskvöldverði í Friðarhúsi 28. október. Kjartan Ólafsson fv. alþingismaður kom …

SHA_forsida_top

Hlerunarskjölin

Hlerunarskjölin

Hlerunarskjölin er hægt að nálgast á vefslóðinni http://www.skjalasafn.is/index.php?node=534

SHA_forsida_top

Staðið á blístri - legið á hleri

Staðið á blístri - legið á hleri

N.k. föstudagskvöld verður hinn mánaðarlegi fjáröflunarmálsverður Friðarhúss. Matseðillinn er að vanda glæsilegur: Kjúklingasalat með austurlensku …

SHA_forsida_top

Aðalfundur húsfélags

Aðalfundur húsfélags

Aðalfundur húsfélagsins að Njálsgötu 87 verður haldinn í Friðarhúsi.

SHA_forsida_top

Rokktónleikar í Friðarhúsi

Rokktónleikar í Friðarhúsi

Bókasafn Andspyrnu heldur rokktónleika í Friðarhúsi kl. 19-21.

SHA_forsida_top

NATO er ekki friðarbandalag

NATO er ekki friðarbandalag

Eftirfarandi grein Einars Ólafssonar birtist í Morgunblaðinu 21. október 2006. Þar hafði slæðst inn ein …

SHA_forsida_top

Bandaríkin, NATO og stríðið gegn hryðjuverkum

Bandaríkin, NATO og stríðið gegn hryðjuverkum

eftir Einar Ólafsson Prentvæn útgáfa Ný heimskipan: alger yfirráð Bandaríkjanna „Áður en Japanir …

SHA_forsida_top

Stríðið í Afganistan

Stríðið í Afganistan

Eftirfarandi grein Þórðar Sveinssonar birtist einnig á vefritinu MIR.IS. Í Afganistan ríkir enginn …

SHA_forsida_top

Friðarhús í útleigu

Friðarhús í útleigu

Í kvöld er Friðarhús í útláni.

SHA_forsida_top

Nýtt skref í frekari samvinnu NATO og Ísraels

Nýtt skref í frekari samvinnu NATO og Ísraels

NATO sendi frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu 16. október síðastliðinn, sem hér birtist í lauslegri …