1. Ekkert í þessum samningi skal túlka þannig, að það breyti óhagganlegum rétti allra samningsaðila til þess, án mismununar og í samræmi við fyrstu og aðra grein þessa samnings, að efla rannsóknir, framleiðslu og notkun kjarnorku í friðsamlegum tilgangi. 2. Allir samingsaðilar skuldbinda sig til að auðvelda, og eiga rétt á að taka þátt í, sem allra víðtækustum skiptum á tækjum, efni og vísinda- og tæknilegum upplýsingum fyrir friðsamlega notkun kjarnorku. Samningsaðilar, sem eru í aðstöðu til þess, skulu einnig vinna að því, sér í lagi eða ásamt öðrum ríkjum eða alþjóðastofnunum, að efla frekari þróun kjarnorkunotkunar í friðsamlegum tilgangi, sérstaklega á landsvæðum kjarnavopnalausra ríkja, með réttu tilliti til þarfa þróunarsvæða heimsbyggðarinnar.Fyrsta og önnur grein samningsins banna flutning kjarnorkuvopna milli kjarnorkuvopnaríkja og kjarnorkuvopnalausra ríkja. Það er ljóst, að samkvæmt NPT-samningum er Íran leyfilegt að þróa kjarnorku í friðsamlegum tilgangi. Meira en 40 ríki hafa nýtt sér þennan rétt á undanförnum áratugum og mikill meirihluti þeirra á ekki kjarnorkuvopn. Engu að síður er eðlilegt að vera á varðbergi þar sem náin tengsl eru milli ferlisins við framleiðslu kjarnorku í friðsamlegum tilgangi annarsvegar og kjarnorkuvopna hinsvegar, sem sagt auðgun úrans. Þar er samt ekki um að ræða nein sjálfvirk eða bein tengsl af því að það þarf miklu minna af auðguðu úrani til framleiðslu kjarnorku en til framleiðslu kjarnorkuvopna eða 3% á móti 90%. En vegna þessara nánu tengsla og vegna þess að þróun frá kjarnorkuframleiðslu til framleiðslu kjarnorkuvopna er möguleg, þá kveður NPT-sáttmálinn á um ákveðin öryggisákvæði. Þau er tilgreind í þriðju grein sáttmálans:
1. Sérhvert kjarnavopnalaust ríki, sem er samningsaðili, skuldbindur sig til að fara eftir öryggisákvæðum, sem sett verða fram í samkomulagi, sem samið verður um og gert verður við Alþjóðakjarnorkumálastofnunina í samræmi við stofnskrá Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar og öryggiskerfi stofnunarinnar, til þess eingöngu að sannprófa, hvort það hefur uppfyllt skuldbindingar sínar samkvæmt þessum samningi, er miða að því að koma í veg fyrir, að kjarnorku verði veitt frá friðsamlegri notkun til kjarnavopna eða annarra kjarnasprengjutækja. Öryggisreglum þeim, sem krafist er í þessari grein, skal fylgt að því er varðar vinnsluefni eða sérstakt kjarnkleyft efni, hvort heldur er við framleiðslu, umbreytingu eða notkun þess í öllum helztu kjarnorkustöðvum eða þegar það er utan við slíka stöð. Öryggisákvæðin, sem krafizt er í þessari grein, eiga að ná til alls vinnsluefnis eða sérstaks kjarnkleyfs efnis við alla friðsamlega notkun kjarnorku á landssvæði slíks ríkis, í lögsögu þess eða hvar sem er undir stjórn þess. Þannig kveður þriðja greinin á um að aðildarríkin verði að fallast á öryggisákvæði Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, en samkvæmt þeim má sannreyna að kjarnorkuframleiðsla sé ekki nýtt til þróunar kjarnorkuvopna. Hér er það sem Íran hefur ekki staðið sig og með því gefið ástæðu til gagnrýni og áhyggna. Fyrir 2003 veitti Íran Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni ekki fullan aðgang að öllum þeim stöðum þar sem kjarnorkuframleiðsla eða þróun hennar fór fram eins og kveðið er á um í samningum um öryggisákvæði. Þeir staðir, sem ekki var hægt að gefa skýrslur um, voru Jabr Ibn Hayan rannsóknarstöðin í Teheran, Esfahan eldsneytisauðgunarstöðin, Natanz eldsneytisauðgunarstöðin og Arak Iran tilraunakjarnorkuverið.Þær ásaknanir, sem nú eru bornar á hendur írönsku stjórninni, eru byggðar á þessum gömlu syndum og þótt hún hafi síðan gefið eftir hefur málið verið blásið enn frekar upp. En eru þau hörðu viðbrögð, sem sýnd eru núna, í einhverju samræmi við stöðuna eða réttlætanleg af henni? Satt að segja hafa allar ofangreindar kjarnorkustöðvar verið settar undir öryggisákvæði Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar eins og stofnunin hefur greint frá. Íran hefur líka samþykkt viðbótarreglur (Additional Protocols), en mörg ríki, sem eru með kjarnorkuframleiðslu, hafa ekki gert það. Þessar reglur veita meiri aðgang til eftirlits en öryggisreglurnar gera. Á undanförnum þremur árum hafa verið gerðar mjög miklar athuganir á kjarnorkustöðvum Írans og auk þess hefur Íran veitt aðgang að ýmsum hernaðarlegum stöðum og samt hefur ekkert fundist sem gefur tilefni til að ætla að Íran sé nú eða hafi verið með áætlanir um að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Tregða íranskra stjórnvalda við að gefa upplýsingar um gerðir sínar fyrir 2003 hefur auðvitað veikt stöðu Írans og gefið tilefni til gagnrýni, og ekki hafa ógeðfelldar yfirlýsingar Ahmadinejads forseta nýlega um Ísraelsríki bætt úr skák. Kjarnorkuvopnaeign Ísraels, í trássi við margar ályktanir Sameinuðu þjóðanna um kjarnorkuvopnalaus Miðausturlönd, veldur tvímælalaust aukinni spennu á svæðinu, en öfgafullar yfirlýsingar forsetans hafa aukið enn á vandann. Þar að auki ber það vott um mikla hræsni að bandarísk stjórnvöld líta fram hjá kjarnorkuvopnaeign Ísraels meðan þau beina spjótum sínum að Íran. Þessi tvískinnungur ýtir undir ótta um að Bandaríkin séu að spinna upp falskar ástæður til að skipta um stjórn í Íran í því skyni að ná tökum á hinum ríku orkulindum landsins. Í því skyni að endurheimta traust varðandi áætlanir sínar samþykkti Íran í nóvember 2004 – í viðræðum við Bretland, Frakkland og Þýskaland, ESB-löndin þrjú – að fresta tímabundið áætlunum sínum um auðgun úrans. Meðan á þessum fresti stæði var ætlunin að ESB-löndin þrjú kæmu með áætlanir um efnahagslega hvatningu og öryggistryggingar sem Íran fengi fyrir að láta vera að auðga sitt eigið úran. Málið er að Bandaríkin hafa gengið hart fram í, að Íran fái ekki fullt vald yfir öllu ferlinu í kjarnorkuframleiðslu sinni vegna möguleikans á að þróa það yfir í framleiðslu kjarnorkuvopna, og að auðgun úransins fari fram annarsstaðar. Á þessum loforðum urðu engar efndir og þar með hefur Íran hætt við að slá áætlunum sínum á frest og fullyrðir enn á ný, í samræmi við alþjóðalög og samninga, að ríkið hafi fullan rétt til að ráða yfir öllu ferlinu í kjarnorkuframleiðslu sinni, og að það muni fara eftir öryggisákvæðum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar. Rússland hefur átt í viðræðum við Íran um þann möguleika að Rússland taki að sér að sjá um auðgun úrans fyrir Íran að mestu leyti meðan Íran héldi eftir litlum hluta þessarar starfsemi. Svo virðist sem samkomulag þessa efnis hafi verið nánast í höfn milli þessara tveggja ríkja en Bandaríkin gátu jafnvel ekki sætt sig við auðgun úrans í litlum mæli og þar með var tilgangslaust að halda þessum viðræðum áfram. Afstaða Bandaríkjanna virðist vera að ekki eigi að „umbuna“ írönskum stjórnvöldum fyrir hversu ósamvinnuþýð þau hafa verið á liðnum árum með minnsta möguleika á að auðga úran. En samtímis því sem Bandaríkin taka afstöðu gagnvart Íran, sem virðist útiloka alla möguleika á samkomulagi, og viðurkenna ekki þá staðreynd að Íran hefur gengið lengra en formlega er krafist varðandi vopnaeftirlit, hefur forseti Bandaríkjanna gert mjög svo umdeilanlegan samning við Indland varðandi kjarnorkumál. Indland, sem hóf framleiðslu á kjarnorkuvopnum seint á tíunda áratug síðustu aldar, hefur ekki undirritað NPT-samninginn og er þess vegna ekki háð samningum um öryggisákvæði. Samingurinn tryggir samvinnu við Bandaríkin um framleiðslu kjarnorku í friðsamlegum tilgangi en Indland heldur réttinum til að neita eftirlitsmönnum Bandaríkjanna um aðgang að kjarnakljúfum sínum sem geta framleitt úran fyrir kjarnorkusprengjur. Hér er aftur um að ræða tvískinnung hjá Bandaríkjunum sem hefur valdið miklum áhyggjum víða um heim en tilgangurinn er vaflaust að treysta böndin við hernaðarlega bandamenn í Asíu. Staðreyndin er að allt efni til kjarnorkuvinnslu í Íran, sem gerð hefur verið grein fyrir, hefur verið kannað og það hefur ekki verið þróað til framleiðslu kjarnorkuvopna. Sem stendur eru engar vísbendingar um að Íran sé með efni eða starfsemi til kjarnorkuframleiðslu sem ekki hefur verið gerð grein fyrir. Fyrri rannsóknir Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar hjá kjarnorkuvopnalausum ríkjum, sem hafa vald yfir öllum þáttum kjarnorkuframleiðslu, hafa tekið allt að sex árum, þannig að það væri við hæfi að gefa tíma til vopnaleitar og samninga í stað þessa óvenjulega þrýstings og flýtis sem settur er gagnvart Íran, og sér í lagi þegar það er almennt viðurkennt að Íran á enn mörg ár í að geta framleitt kjarnorkuvopn, jafnvel þótt gert sé ráð fyrir að að því sé stefnt. Það er ekki auðvelt að horfa framhjá samsvöruninni við aðdraganda Íraksstíðsins þar sem vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu þjóðana fóru fram á meiri tíma til kannana en Bandaríkin höfnuðu því og kusu þess í stað að hraða ólöglegu stríði sem var réttlætt með innistæðulausum ásökunum. Heimurinn hefur undanfarin þrjú ár horft upp á hræðilegar afleiðingar þess stríðs. Alþjóðasamfélagið verður nú að vinna einarðlega að því að koma í veg fyrir árás á Íran og ríkisstjórn Bretlands verður að nýta sérstakt samband sitt við bandarísk stjórnvöld í því skyni. Ef þetta tekst ekki verða afleiðingarnar skelfilegar fyrir Miðausturlönd og alla heimsbyggðina.

Fyrsti fjáröflunarmálsverður ársins 2023 í Friðarhúsi verður föstudaginn 27. Janúar n.k. kl. 19:00. …

Kúrdar eiga í vök að verjast í landamærahéruðum Tyrklands vegna árásarstríðs tyrkneska hersins. Hver …

Friðarganga á Þorláksmessu hefur verið fastur liður í Reykjavík frá árinu 1981. Safnast er …

Fullveldismálsverður SHA verður að venju glæsilegur. Guðrún Bóasdóttir matreiðir svignandi hátíðahlaðborð alskyns góðgætis núna á …

Miklar fregnir berast frá Íran þessa daganna, þar sem söguleg mótmæli eiga sér stað …

Fjáröflunarmálsverður Samtaka hernaðarandstæðinga verður í Friðarhúsi föstudagskvöldið 28. október. Matseldinn verður í höndum …

Um mánaðarmótin fór Maurizio Tani til Úkraínu með fjölþjóðlegu liði friðarsinna til þess að …

Fjáröflunarmálsverðir Samtaka hernaðarandstæðinga í Friðarhúsi hefja göngu sína að nýju eftir sumarfrí. Bjarki …

Þegar ég fæddist fyrir nærri því 79 árum geisaði stríð í heiminum, grimmileg landvinningastyrjöld sem …

Efnt verður til kertafleytinga á fjórum stöðum þriðjudagskvöldið 9. ágúst, á Nagasakí-daginn, til að minnast …

Sjaldan eða aldrei hafa kertafleytingar farið fram á fleiri stöðum en nú. Friðarsinnar í Reykjavík, …

Maurizio Tani býður öllum Íslendingum á borgarafund í þágu friðar í Hallargarðinum við Fríkirkjuna kl. …

Fjáröflunarmálsverðið Samtaka hernaðarandstæðinga halda áfram og föstudaginn 29. apríl verður boðið upp á glæsilegan …

Samtök hernaðarandstæðinga eru komin aftur með kaffi og vöfflur til að hita upp fyrir kröfugöngu …

Landsfundur SHA 2022 fór fram núna um helgina og var vel sóttur. Skýrsla miðnefndar var …